Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1941, Síða 35
ALMANAK 1941
35
Sigríður kom að heiman með foreldrum sínum og
systkinum árið 1883 — sama ár og maður hennar.
Þau hjón fluttu til Marietta eins og fyr segir.
Fékk Guðmundur vinnu í einni stærstu matvöru-
búð í Bellingham, gerðist brátt meðeigandi í
þeirri verzlun og vann þar meðan hann lifði.
Hann lézt þ. 16. febrúar árið 1932.
Þau hjónin Guðmundur og Sigríður Goodman
fiuttu til Bellingham bráðlega eftir að Guðmundur
fór að vinna þar, komu sér upp myndarlegu heim-
ili og býr ekkjan þar nú með börnum sínum, þeim,
sem enn eru heima. Börn þeirra hjóna eru
ellefu. Þau eru: Mrs. Lilja, Mrs. Ágústína Árna-
son, Kjartan og Haraldur, báðir kvæntir hérlend-
um konum, Stefanía, dáin, May Shagren, Florence
Ramsey, June Guglams, Jim, Leo, og Walter,
heima hjá móður sinni. Auk þessara barna sinna
tóku þau sér og ólu upp kjördóttir — Ingibjörgu,
dóttur Guðmundar og önnu, eitt sinn í Pembina,
nú dáin. Ingibjörg er gift hérlendum manni, lög-
fræðing. Alt á þetta fólk heima í Bellingham. Öll
börnin útskrifuðust úr miðskóla, þau, er þeim
aldri hafa náð, sum hafa gengið á Washington
University, og þar er Leo nú, en Walter á mið-
skóla í Bellingham.
Öll eru börnin mannvænleg í raun og sjón,
enda eiga þau hvorugt langt að sækja, þvi fallegri
hjón er óvíða að finna en foreldrar þeirra voru.
Sigríður með fegurstu konum og að sama skapi
höfðingleg. Guðmundur prúðmenni, fríður sýnum
og vel vaxinn, þar til og með lipurmenni hið
mesta. Á öllum íslenzkum mannamótum, þar sem
íþróttir af einhverji tagi fóru fram. stjórnaði
“Mundi” þeim að sjálfsögðu. “Mundi” var hann
kallaður af flestum, sem til hans þektu, — siálf-
sagt af því, að öllum var vel til hans, enda báru
menn aiment traust til hans. Hann var greið-