Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1941, Page 50
50 ÖLAFUR S. THORGEIRSSON:
Guðbjörg var með fyrra manni sínum land-
nemi í tveim íslenzkum nýlendum, Argyle og
Þingvalla. Þó Jón fyrri maður hennar væri lærð-
ur söðlasmiður heima, mun hann ekki hafa stund-
að þesskonar iðn í þessu landi. f Winnipeg vann
hann víst mest við byggingar.
Guðbjörg er vönduð og góð kona og vel látin.
Vigfús Vopni er húsasmiður og hefir rekið
þá iðn meira og minna alla æfi, fyrst hjá öðrum
en síðan hann kom vestur hér, upp á eigin spýtur.
Hann er verkmaður mikill og hagsýnn um alt
sem hann gerir. í Bellingham leið þeim hjónum
lengi vel, áttu gott heimili, sem æfinlega stóð
opið vinum þeirra. Gestrisin eru þau og vel liðin.
Viðvíkjandi ætt Vigfús Vopna, er nóg að segja, að
hann sé bróðir Jóns Vopna í Winnipeg. Við hann
kannast allir.
Stefán Jónsson er fæddur 4. júlí 1874 í Sveins-
koti á Reykjáströnd í Skagafjarðarsýslu. Faðir
hans var Jón sonur Bjarna bónda á Sjávarborg,
Jónssonar bónda í Vallholti í sömu sveit, og sýslu.
Móðir Stefáns var Helga Sölvadóttir frá Steini á
Reykjaströnd Ólafssonar á sama bæ. Foreldrar
Stefáns bjuggu eitt sinn á Hafsteinsstöðum í sam-
býli við séra Magnús Torlacíus. Föðurbræður
Stefáns voru þeir Sigurður bóndi á Stóra-Vatns-
skarði, Þorsteinn í Litlu Gröf og Jónas á Efra-
vatni, seinna á Kimbastöðum. Jón faðir Stefáns
drukknaði frá Sauðárkrók, þar átti hann heima
síðustu æfiár sín. Hann drukknaði árið 1882.
Bjó Helga eftir það með syni sínum Bjarna, er þá
tók við búsforráðum, þá 19 ára gamall. Hann er
nú elstur Drangeyjarformaður í Skagafirði.
Stefán ólst upp hjá móður sinn, en fór ungur
að vinna fyrir sér, við smalamensku á sumrum og