Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1945, Page 34
34
ÓLAFUR S. THORGEIRSSON:
Víðilæk, Guðlaug, kona Guðmundar Finnbogasonar, en
Björn Ólafsson (Björnssonar frá Geldingi) var hálfbróðir
Gísla, sammæðra. Gísli fór með konu sína, Önnu Kristínu
Einarsdóttur frá Egilsseli, Fellum, vestur um haf, fyrst
til Nýja Islands (3 ár), þá til North Dakota, þar sem hann
bjó nálægt Hensel, og loks vestur til Markerville, Alta.
Líklega hafa þau Ingibjörg systir hans og Björn Ólafsson
fylgt honum; þau bjuggu bæði nálægt Hensel, N. Dak.
Þau Gísli og Anna Kristín áttu mörg börn. Gísli dó 1919
en kona hans 1923. 11)
Magnús Jónasson (f. 1849, d. 1930) í Höskuldsstaðaseli
var sonur Jónasar bónda þar og Bagnheiðar Þorvarðar-
dóttur frá Höskuldsstöðum. Magnús bjó nokkur ár með
móður sinni, eftir að hún misti manninn; hann kvæntist
1873 Guðbjörgu Marteinsdóttur frá Skriðustekk (f. 1852,
d. 1942). Þau tóku land í Fljótsbyggð, Nýja Islandi. Börn
þeirra voru: Sigríður, Jónas bóndi á Ósi (í Nýja íslandi)
og Marteinn M. Jónasson, sveitaskrifari í Arborg, Nýja
Islandi, merkur maður. 18) Þau Sigríður og Jónas eru
dáin.
Guðmundur Marteinsson (f. á Ormsstöðum 1841) frá
Skriðustekk var sonur Marteins bónda þar, Jónssonar
bónda á Skriðu, Gunnlaugssonar bónda á Streiti, Erlends-
sonar bónda á Streiti. Móðir Guðmundar, kona Marteins
á Skriðustekk, var Sigríður Einarsdóttir bónda á Stóra-
Steinsvaði, bróður Þorvarðar á Ilöskuldsstöðum. Móðir
Sigríðar var Guðlaug Eiríksdóttir bónda á Stóra-Steins-
vaði, en systir Guðlaugar var Vilborg Eiríksdóttir, kona
Þorvarðar á Höskuldsstöðum.
Þau hjónin Marteinn og Sigríður á Skriðustekk áttu,
auk Guðmundar, Guðbjörgu, gifta Magnúsi Jónassyni í
Höskuldsstaðaseli (hér að framan), Helgu, gifta Einari
Eiríkssyni frá Þorgrímsstöðum og Kristínu, gifta Birni
17) ÓSTh. 1912, 82 -3. ThJ. SNDak., 176.
18) ÓSTh. 1933, 61-62.