Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1945, Síða 39
ALMANAK
39
borgar Jónsdóttur; þau bjuggu á Ánastöðum frá 1878 þar
til 1883, að þau fóru til Ameríku með þrjár dætur sínar.
Alls áttu þau 6 börn. Þau settust að í Akrabyggð, N.
Dakota. 27) Runólfur missti tvær dætur og konu sína,
átti síðar konu, sem hjet Guðný; hann dó 1928.
Bróðir Runólfs var Stefán Sigurðsson; hann var fædd-
ur á Jórvíkurstekk (1858) og ólst þar upp. Þaðan fór hann
upp á Hérað og þaðan vestur um haf; það var ekki fyrr
en 1893. Hann dó 1936.
Á þessum árum fóru líka vestur Einar Jósepsson frá
Jórvík og Magnús Þorvarðarson frá Streiti. Hvorugur
þessara manna ílentust vestra, heldur komu þeir heim
aftur og settust að í Breiðdal. Einar fór 1882 og kom 1884;
hann giftist Guðnýju Þórðardóttur frá Tóarseli og bjó
þar lengi. Magnús kvað hafa farið heldur fyrr og komið
síðar heim; hann átti konu, sem Júlíana hét og með henni
margt bama.
Þorgrímur Arnbjörnsson var fæddur að Þorvaldsstöð-
um 1851, einn af fjölda barna, sem síðar verður getið.
Foreldrar hans voru Guðný Erlendsdóttir og Arnbjörn
Sigmundsson. Þorgrímur giftist, að sögn Ingibjargar Hós-
easdóttur, Solveigu Halldórsdóttur, ljósmóður, frá Haug-
um vorið 1885, og fóru þau sama vor vestur um haf. Þau
hjón bjuggu lengst vestur við Kyrrahaf, og þar dó Þor-
grímur í Seattle, Wash. 1936.
Ingibjörg Hóseasdóttir telur þessa bræður Þorgríms:
“Jón fluttist hingað til Ameríku og var í Brasilíu; 28)
Bóas hét einn, mig minnir helst hann flytja líka vestur.
Guðjón hét einn; bjó eitt eða tvö ár á Randversstöðum,
en lengst af í Fljótsdal. Þorsteinn var einn ... Um Arn-
björn man eg ekki fyrir víst hvenær lrann fór til Ame-
ríku. Hann var smali hjá foreldrum mínum í Jórvík 1879
og fór eftir það vestur. (Hann var (dó?) í Lewiston (?), í
27) ThJ. SNDak. 228.
28) Eg hef ekki séð þess getið í Æfintýri ÞÞÞ’s.