Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1945, Síða 40
40
ÓLAFUR S. THORGEIRSSON:
Michigan 36 ára.) Guðmundur Arnbjömsson Isberg var
fæddur á Ytri-Kleif 1858; giftist 1878 Ólafíu dóttur Guðm-
undar Finnbogasonar á Þorgrímsstöðum og fór með þeim
hjónum til Ameríku 1887. Hann dó 1944.”
Þá er komið að vesturför stórhópsins 1887. Það voru
eigi aðeins Breiðdælingar, sem þá flykktust vestur um
haf, heldur var alveg óvenjulegur brottfararhugur í mönn-
um um land allt og olli því hallæri, sem geysað hafði þá
síðustu tvö árin. Má lesa um það í Sögu Vestur Islendinga
(I, 127 o. n.). Þótt merkilegt væri, heyrði eg gamla menn
aldrei tala um þetta hallæri, þótt þeir töluðu oft um frosta-
veturinn 1881—82.
En nú skulu taldir þeir, er fóru vestur árið (sumarið)
1887.
Einar Eiríksson, bróðir Gísla, er vestur fór frá Þor-
grímsstöðum 1878, hafði ætlað að verða bróður sínum
samferða þá, en varð að setjast aftur sökurn þess, að þeir,
sem keyptu bú hans, gátu ekki staðið í skílum. Á næstu
árum bjó hann á hverjum bænum eftir annan: Jórvík-
urstekk, Innri-Kleif, Þorvaldsstöðum og Hóli, og þaðan
fór hann með konu sinni, Helgu Marteinsdóttur frá Skrið-
ustekk vestur um haf 1887. Þau lentu til N. Dakota, þar
var þá fyrir Gísli bróðir hans, og námu land við Akra. 29)
Þar dó Helga 1903, en Einar lenti á endanum til Mozart,
Sask. 30) Þar dó hann 1917.
Guðmundur Finnbogason var fæddur að Víðilæk í
Skriðdal 1842. Hann var bróðir hins nafnkunna Jóns
Finnbogasonar, og Valgerðar systur þeirra verður hér enn
getið. Guðmundur fluttist að Þorgrímsstöðum, þegar
Gisli fór til Ameríku (1878) og kvæntist Guðlaugu Eiríks-
dóttur (f. 1842), systur þeirra Þorgrímsstaðabræðra. Þau
fóru vestur 1887. Thorstína Jackson segir, 31) að þau hafi
29) ThJ. SNDak. 176 telur Einar rétt á eftir Gísla bróður
lians, en veit ekki skyldleik þeirra.
30) ÓSTh. 1912, 82. 31) ThJ. SNDak. 181