Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1945, Side 74
74
ÓLAFUR S. THORGEIRSSON:
adóttir (Janusson) er ein af ágætisdætrum Islands. Hún
hefir staðið í stríði lífsins með bros á vör. Hún hefir átt
mikinn þátt í að byggja upp sitt heimili og allan félags-
skap á meðal landa sinna.
<* O
Fáein orð langar mig einnig til að skrifa um Jón Ein-
arsson, sem var einn af frumbýlingunum við Foam Lake,
mun hafa komið hingað í byggð árið 1907. Hann var
fjölhæfur maður, og það svo að með afbrygðum var, og
ágætur félagsmáður. Mig brestur bæði vit og þekkingu
til þess að lýsa öllu því, er Jón lagði hönd og hug á. Hanu
var vel ritfær og reit í blöð og tímarit, sem margir vita.
Hagur var hann og lagði hönd á fleira en eina grein í
þeim sökum. Hann var og góður húsasmiður. Heimili silt
byggði hann upp af litlum efnum, en sýndi hagsýni og
vit í öllu starfi sínu. Sönghneigður var hann og skildi vel
músik. Læknisfræði hafði hann lesið, um skeið heima á
Islandi stundaði hann hómópatíu. Þetta er bara í fáum
orðum sagt frá listhneigð Jóns Einarssonar, en fleira
hefði mátt geta um, sem Jón iðkaði um dagana. Hann
var alla tíma vinur og starfsmaður lúterska safnaðarins í
Foam Lake. Kona hans var Kristíana Helgadóttir, systir
Kristjáns heitins Helgasonar. Hún var hin ágætasta kona,
sem byggði upp heimilið og styrkti allan félagsskap.
Aldrei létu þessi hjón sig vanta, þar sem starfað var að
félagsmálum. Kristíana er nú látin fyrir stuttu.
Þetta fólk, sem eg hefi nú getið um, lagði undirstöð-
una að íslenzkum félagsskap á sínum slóðum, og lagði
sinn drjúga skerf til þess að byggja upp Canada. Þetta
fólk hefir sýnt fagrar dyggðir og mikla fórnfýsi fyrir þetta
land og verið sómi okkar ágætu íslenzku þjóðar.