Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1945, Page 90
90
ÓLAFUR S. THORGEIRSSON:
23. febr.—Sigurgeir Sigurðsson biskup, Ásmundur P.
Jóhannsson byggingameistari og Gunnar B. Björnsson
ritstjóri kosnir heiðursfélagar í Þjóðræknisfélaginu. Sam-
tímis var tilkynnt, að landstjóri Canada, the Earl of Ath-
lone, og þáverandi ríkisstjóri Islands, herra Sveinn Björns-
son, hefðu sýnt félaginu þann sóma að gerast verndarar
þess (Honorary Patrons).
Febr.—Ríkisstjórn íslands sæmdi fjóra Vesturlslend-
inga heiðursmerki íslenzku Fálkaorðunnar; hlaut dr.
Sveinbjörn Johnson prófessor stjörnu stórriddara en stór-
riddarakross hlutu Hjálmar Björnsson ritstjóri, dr. Árni
Helgason ræðismaður og dr. Richard Beck prófessor. Af-
henti biskup fslands heiðursmerkin fyrir hönd stjórnar-
innar.
3. marz—Stofnað félag íslenzkra námsmanna í Minne-
apolis. 1 stjórn voru kosin: Björn Halldórsson, formaður;
Haraldur Bragi Magnússon, gjaldkeri; Edward Friðriks-
son fundarritari; Sigurbjörn Þorbjörnsson, upplýsinga-
stjóri, og Esther Björnsson, ritari.
Marz—Hjálmar A. Bergmann, K. C., lögfræðingur,
skipaður dómari í áfrýjunar rétti Manitoba-fylkis (Court
of Appeal), sem er hæsti réttur fylkisins. f tilefni af þeim
fágæta heiðri, hélt Þjóðræknisfélagið honum fjölmennt
og veglegt samsæti þ. 27. apríl, en hann tók embættiseið
sinn við mjög hátíðlega athöfn, og að viðstöddu marg-
menni, þ. 8. maí.
f9. marz—Olíumynd af dr. B. B. Jónsson afhjúpuð við
virðulega minningarathöfn við árdegisguðsþjónustu í
Fyrstu lútersku kirkju í Winnipeg. Dr. B. J. Brandson
afhjúpaði málverkið, en sóknarpresturinn, séra Valdimar
J. Eylands, minntist fyrirrennara síns í embættinu sérst-
aklega í stólræðu sinni.
f9. marz—Stofnaður íslenzkur lúterskur söfnuður í
Vancouver, B. C. Prestur hans, séra Runólfur Marteins-
son, hafði undirbúið stofnunina, en forseti hans er L. H.