Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1945, Blaðsíða 95
ALMANAK
95
um, er sóknarpresturinn dr. Haraldur Sigmar, forseti lút-
erska kirkjufélagsins, stjórnaði; annar fyrrv. prestur safn-
aðarins, séra Kristinn K. Ólafsson, fyrrv. forseti kirkjufél-
agsins, flutti einnig ræðu. Aðrir prestar, er þjónað hafa
söfnuði þessum, voru þeir séra Jónas A. Sigurðsson og
séra Hans B. Thorgrimsen.
Júní—Nína Sæmundson myndhöggvari hélt sýningu á
myndum sínum í Los Angeles, er vakti mikla athygli,
enda hefir hún fyrir löngu hlotið mikla og víðstæka viður-
kenningu fyrir list sína.
8.-9. júlí—'Tuttugasta ársþing Bandalags lúterskra
kvenna haldið að Langruth, Man. Forseti var kosin Mrs.
S. Ólafsson, í stað Mrs. G. Thorleifsson.
27. júlí—Lauk Mrs. Freda Ásmundson Freeman (frá
Bottineau, N. Dak.) kennaraprófi á ríkisháskólanum í N.
Dak. og hlaut menntastigin “Bachelor of Science in Ed-
ucation” og “Bachelor’s Diploma in Teaching”.
18. ágúst—Thor Thors sendiherra Islands í Washing-
to sæmdur heiðursdoktors-nafnbót í lögum (LL.D.) við
Rider College, í Trenton, í New Jersey ríki.
24. ágúst—Kom forseti Islands, herra Sveinn Björns-
son, ásamt með herra Vilhjálmi Þór utanríkisráðherra, til
Washington í boði forseta og ríkisstjórnar Bandaríkjanna.
Dvöldu þeir í landi þar til 1. september og áttu framúr-
skarandi viðtökum að fagna. (Smbr. lýsingu á ferð þeirra
að framan hér í ritinu).
16. sept.—Efndu konur innan Sambands kvenfélaga
Hins sameinaða kirkjufélags Islendinga til veglegs sam-
sætis í Winnipeg til heiðurs við Mrs. S. E. Björnson, fyrrv.
forseta Sambandsins, í tilefni af því, að hún hafði verið
kosin æfifélagi í kvennasambandi (General Alliance)
American Unitarian Association í Boston.
Okt.—I byrjun þess mánaðar kom út fyrsta hefti mán-
aðarrits á ensku, “Our Parish Messenger”, sem Hið lút-