Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1945, Page 97
ALMANAK
97
7. nóv.—Við almennar kosningar í Bandaríkjunum var
Níels G. Johnson kosinn dómsmálaráðherra í Norður-Da-
kota ríki með mjög miklu afli atkvæða. Hann er sonur
þeirra Guðbjartar Jónssonar Magnússonar frá Hróá í
Steingrímsfirði og Guðrúnar Ólafsdóttur frá Guðlaugs-
vík í Hrútafirði; fluttist barnungur með þeim vestur um
haf aldamótaárið og ólst upp með þeim í íslenzku byggð-
inni í Upham, N. Dakota.
Við sömu kosningar voru þessir Islendingar endur-
kosnir ríkislögsóknarar (State Attorneys) í N. Dakota:
Oscar B. Benson, í Bottineau County; Einar Johnson
(bróðir Níelsar ráðherra), í Nelson County; J. M. Snow-
field í Cavalier County; Fred Snowfield (bróðir hins fyr-
nefnda), í Pembina County, tveir hinir síðastnefndu gagn-
sóknarlaust. John Axdal var endurkosinn féhirðir í Pem-
ina County og A. F. Hall var kosinn sveitarráðsmaður í
sama héraði (County Commissioner).
27. nóv.—Var minnst 60 ára afmælis Fríkirkjusafnaðar
í Argyle-byggð í Manitoba með fjölmennri og veglegri
samkomu, er sóknarpresturinn séra Egill H. Fafnis stjóm-
aði og flutti hann einnig ítarlegt erindi um sögu safnað-
arins, sem er elsti íslenzkur söfnuður á þeim slóðum. Séra
Friðrik Hallgrímsson, nú dómprófastur í Reykjavík,
þjónaði Jressum söfnuði, ásamt öðrum söfnuðum presta-
kallsins, um langt skeið, en síðar séra Kristinn K. Ólafsson.