Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1945, Page 105
ALMANAK
105
syni og Sigríði Þorkelsdóttur. Fluttist nieð þeim til Nýja Skot-
lands í Canada 1875 og síðar til íslenzku byggðarinnar í N.
Dakota.
16. Þórunn Einarsdóttir Tait, ekkja Magnúsar Teitssonar (Tait, d.
1936), að heimili sonar síns Leonard Tait og konu hans í
Miami, Florida, í Bandarikjunum. Fædd 23. maí 1874 að
Kampsfelli í Eyjafirði. Foreldrar: Einar Jóhannesson og Guð-
rún Abrahamsdóttir. Fluttist með þeim til Ameríku 1883.
18. Jarðprúður Aðalheiður Eyjólfsson, kona Magnúsar Eyjólfssonar
í Riverton, Man., á Almenna sjúkrahúsinu í Winnipeg. Fædd
17. des. 1890 að Akra, N. Dak. Foreldrar: Jón Jónsson East-
mann, frá Bót í Hróarstungu í Siður-Múlasýslu og Guðlaug
Halldórsdóttir frá Egilsstöðum á Völlum.
23. Guðbjörg Jónsdóttir, ekkja Kristjáns Benediktssonar skálds og
rithöfundar (látinn fyrir eitthvað 20 árum), að heimili dóttur
sinnar í Edmonton, Alta. Ættuð frá Víðirhóli á Hólsfjöllum,
74 ára að aldri.
28. Jón Sigfússon Gillis, að heimili sínu í Brown, Man. Fæddur að
Völlum í Hólmi í Skagafirði 19. júlí 1864. Foreldrar: Sigfús
Gíslason og Rannveig Árnadóttir. Kom með þeim til Ameríku
1876. Landnámsmaður í Brown-nýlendunni og tók mikinn þátt
í félagsmálum og opinberum störfum.
30. Anna Lovísa Hogan Kristjánsson, ekkja Kristjáns Sigurðsson-
ar Kristjánssonar (d. 1938), á sjúkrahús. í Wadena, Sask. Fædd
að Mountain, N. Dak., 23. marz 1888. Foreldrar: Lars Hogan,
af norskum ættum, og Sigrún dóttir Björns prests Péturssonar,
alsystir Dr. Ólafs Björnssonar og þeirra systkina. Fluttist með
foreldrum sínum til Vatnabyggða í Sask. 1904.
APRIL 1944
1. Haraldur Maríus Anderson, að heimili sínu við Winnipeg
Beach, Man. Fæddur í Mikley, Man., 2. nóv. 1877. Foreldrar:
Guðmundur Daníelsson (Anderson) og Guðrún Þórðardóttir.
Hafði um 40 ár verið kaupmaður að Winnipeg Beach.
9. Guðmundur Arnbjörnsson Isfeld, að heimili sínu að Lundav,
Man. Fæddur 4. apríl 1858 að Ytri-Kleif í Breiðdal í Suður-
Múlasýslu. Foreldrar: Arnbjörn Sigmundsson og Guðný Erl-
endsdóttir. Fluttist vestur um haf með eftirlifandi ekkju sinni,
Ólafíu Guðmundsdóttur, árið 1887. Námu land í Siglunesbyggð
1895.
19. Gísli Sigurbjartur Johnson vélaformaður, af slysförum í Fav-
ourable Lake, Ont. Fæddur 7. apríl 1898 í Pembina, N. Dak.
Foreldrar: Guðmundur Guðmundsson og Anna Guðmunds-
dóttir. Ólst upp hjá Metúsalem Jónsson og Ásu Einarsdóttur og
flutti með þeim til Nýja Islands eftir aldamótin.
19. William Alfred Albert, á skrifstofu sinni í Seattle, Wash.
Fæddur í Winnipeg 30. júlí 1887. Foreldrar: Kristján Albert
og kona hans.