Heimilisvinurinn - 01.09.1906, Blaðsíða 42
Lifðu mér.
Smásaga tileinkuð ekkjum og mæðrum, er mistu ástvim
sina í sjóinn í apríl 1906.
Eftir Guðriínu Lárusdóltir.
Þær voru systur. Faðir þeirra dó vorib sem
Ásdís var íermd, þá var Helga litla 3 ára gömul.
Móðir þeirra var heilsulítil; hún sagði oft við Ás-
dísi: „Þegar eg er dáin, verður þú að hugsa um
Helgu litlu, þá á hún engan að nema þig“. Ásdís
bað móður sína að ráðgera ekki að deyja; hún
gat ekki hugsað sér að eiga að sjá henni á bak;
tárin vættu brár hennar við þá hugsun.
„Dauðinn gengur ætið við hlið manns“, sagði
móðir hennar þá, „en það gerir ekkert til, ef Jes-
ús er við hina hiiðina".
En það kom þó að því, að systurnar urðu að
kveðja móður sína og fyigja henni til grafar, og þá
þurfti Ásdís að vera systur sinni í móðurstað, ala
önn fyrir henni á allan hátt. — Oft var þaö tals-
vert erfitt, en það gekk þó nokkurn veginn vei, af
því henni þótti svo vænt um barnið og vildi leggja