Heimilisvinurinn - 01.09.1906, Síða 48
48
HEIMILISVINURINN
Hér finst oss svo skelfing dimt og kalt.
— Ef við mig kynnir mæla, mamma góða,
Pað myndi eflaust svipað þessu hljóða:
„Gráttu ekki, góða dóttir mín.
Guðs míns til nú komin er eg heim,
Þó ekki fengi eg fundið börnin þín,
Frelsarann minn gæta bið að þeim.
— Gjör þitt til, að geyma blómin smáu,
Svo guðs þau nái dýrðarsölum háu“.
Gjafir allar guði eru frá,
Góðar margar lætur hann i té,
Þér af hjarta, þakka drottinn má,
Þá til baka horfi eg og sé,
Móður-ástúð ásamt fleiri gæðum,
Alt má þakka drottni guði á hæðum.
Eftir máske ofurlitla stund,
Elsku mamma, fæ eg þig að sjá,
Þegar kem eg frelsarans á fund,
Farin jarðnesk sorgin öll er þá.
Er það sæla, er enginn hugsa réði,
þá öll hjá Jesú finnumst — hvílík gleði!
Ó, þú maður, áttu lífsins von?
Ef þú slíkan gimstein hefir mist,
Bið þér hjálpa helgan drottins son,
Að höndla megir dýrgrip þann sem fyrst.
Enn er tíð — ó gæt þín — gæt þín, hjarta,
Glataðu elcki von um eilífð bjarta.
2% ’96. S. L