Dýravinurinn - 01.01.1895, Blaðsíða 10

Dýravinurinn - 01.01.1895, Blaðsíða 10
6 sjálfur skuld í honura og einginn annar. og því var saraviska hans svo pín- andi sár við hann og gaf honura aungan frið. Hann rakti fet fyrir fet alla æfi sína, frá því fyrst að hann sá svanina koma á gullvængjunum við heiðar- brúnina og alt fram að þessari stund. Iíann mundi hve ákaft hann hafði elskað Sónaide og elskaði hana þó aldrei heitara en nú. Hann mintist þess, hve ástrík og ráðholl hún hafði verið honum öll þau ár, og hve oft hún hafði hvatt hann til að láta af svallinu með vinum sínum, veðreiðum sinura og þessum laungu og tíðu veiðiferðum. Svo mintist hann þess, hvernig lokkun- ar- og fríunarorð vina hans höfðu dregið hann út á sömu villistiguna livað eftir annað, út á þá villistigu, sem hugsunarlaus, gjálíf og munaðargjörn æska hafði leitt hann út á í fyrstu. Alt þetta hafði hann gert í stað þess að hugsa um velferð þegna sinna eins og Sónaide hafði svo oft mint hann á. Og það var nærri ótrúlegt, hve þolinmóð hún hafði verið. Hve oft hafði hún ekki geingið grátandi burt, þegar hann kom heim með blóðug dýrin af veiðum, og hafði þá stundum skotið mæður frá úngum afkvæmum eða afkvæmi frá mæðrum, og aldrei hafði hún mælt til hans eitt ásökunar orð nema að eins í fyrsta sinn, þegar hann kom með svaninn, sem hann hafði sært i brjóstið og hundur hatis hafði dregið hálfdauðan upp úr reyrnum, þá bað hún hann grát- andi að hætta að skjóta saklaus dýrin og lofa þeim að eiga frið í ríkjum þeirra, eins og hin rjetta Bramatrú byði. Hann hafði þá heitið því hátíðlega, en lítið gert að því að efna það híngað til. Eins hafði hann heitið henni þvi að drekka sig aldrei ölvaðan, og hvernig hafði hann ekki efnt það. Það var ölið, sem var orsök í allri ógæfu hans. Það var orsök í þvi, að hann sagði henni fyrsta móðgunaryrðið, þá fyrir tveim árum, og þá hefði hann þegar átt vísan bana, ef hún hefði ekki bjargað honum, tekið svanaham sinn og fiogið á fund fóstra síns og beöið honum griða. Hve sæll var hann ekki þá, þegar hún kom aftur í svanaham sínum um morguninn, breiddi svo faðminn á móti hon- um, lagði hendur um háls honum og sagði með gleðitárin í augunum að lion- um væri fyrirgefið. Og þó hafði hann aftur sármóðgað hana, þegar hann kom ölvaður af veiðiförinni í fyrra dag, og þó hafði hún ekki sagt eitt orð, og gengið að eins þegjandi og sorgbitin inn í herbergi sitt, þetta sama her- bergi, sem hann var í nú. Hjer liafði hún mátt láta myrkrið og þögnina friða harm sinn. Hann hafði að sönnu iðrað þessa, þegar af honum rann öl- víman og farið inn i herbergi hennar til að biðja hana grátandi fyrirgefning- ar, en þá var sængin auð. Hún var án efa eins í þetta sinn farin til að biðja honum vægðar, því fóstri hennar myndi senda Hatú miskunarlaust undir eins og hann vissi að henni var gert hugstríð. En þessi bið var svo óendanlega þúngbær að þessu sinni. I fyrra sinn var hún komin aftur um morguninn við sólar uppkomu, en hann hafði vakað þar á sama stað eftir henni alla síðustu nótt, allan daginn og það sem af var þessari nótt, og enn þá var hún ekki komin. Nú fanst Sjatar konúngi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dýravinurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dýravinurinn
https://timarit.is/publication/430

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.