Dýravinurinn - 01.01.1895, Blaðsíða 15

Dýravinurinn - 01.01.1895, Blaðsíða 15
11 sú rödd alt af verið svo veik og hikandi, en á þessari stundu var hún svö yndislega skær. En þetta gat ekki verið rödd frá hans eigin brjósti, því hann heyrði hana aftur, hvað eítir annað og einlægt sætari og sætari, skær- ari og skærari, og það var eins og hún hljómaði frá þúsundum túngna alt í kríng um hann. Svo tók hann höndurnar frá andlitinu og ieit upp; þá var eins og kominn væri bjartur vormorgun alt í kríngum hann; og þetta gat einginn jarðnesk birta verið, það var himneskur morgunljómi; og sjónin varð einhvern veginn svo skörp, því hann sá alla bústaði guðanna og guðina sjálfa. Hann sá svo glögt hvar Parvatí, móðir Sónaide, lyíti sjer upp bak við hæð- ina fyrir framan hann og hjelt upp sóUnni á lófa sínum og ljet hana senda geislana yfir hæðarbrúnina og niður yfir vatnið, sem hann stóð við. Og þar kom Sónaide sjálf íneð öllum sex systrum sinum, eins og þær liðu á móti honum á geislunum og allar fjaðrirnar í vængjum þeirra væri úr gulli; svo settust þær niður á vatnið og liðu beint yfir til hans og upp að landinu. Þá sá hann í sama bili, hvar þær horfðu á hann allar meyjarnar og Sónaide í miðið, en svanirnir vögguðu sjer við klappirnar með nefin undir vængjunum. Þá ætlaði Sjatar konúngur að flýja, þvi honum fanst sem hann hefði ein- hvern tima dreymt þetta áður, og þá hefði alt horfið og látið hann einan eft- ir. En þá sagði Sónaide: »Nú mátt þú koma með okkur, vinur minn, því nú átt þú líka svanaham, og nú þurfum við aldrei að skilja oftar.« »Jeg á aung- an ham«, svaraði Sjatar konúngur, »minn hamur er í gullskríninu og hefur und á brjóstinu við hjartað«. En þá hóf Sónaide gullskrinið upp úr vatninu, lauk því upp og tók þar út svanahaminn, lyfti upp vinstra vængnum og sagði: »Hje^ er eingin und, elsku vinur minn, tárin þín hafa grætt hana fyrir laungu«. Þá fanst Sjatar konúngi sem hann yrði snortinn af einhverri óum- ræðilegri sælu, þegar hann heyrði þetta og leit á brjóstið á svaninum og sá að þar var alt hvítt og sljett og eingin blóðrák og eingin fjöður úr lagi færð. Hann lagði þar þá hönd sína á og fann að lijartað bærðist þar aptur í brjóst- inu. Þá rjetti Sónaide út arma sina á móti lionum, og hann leit á brjóstið, og sá að undin var horíin þar líka, ekki einu sinni örið sást þar eftir. Og Sjatar konúngur hneig Ijett i faðm Sónaide, og þegar sólin var kornin upp fyrir hæðina flúgu átta svanir austur yfir vatnið, þángað sem sólin var, og Parvatí móðir Sónaide og bústaðir allra guðanna. Þetta er saga Sjatars konúng og Sónaide drottíngar, eins og hvert barn sagði öðru hana á Indíalandi. 2
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dýravinurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dýravinurinn
https://timarit.is/publication/430

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.