Dýravinurinn - 01.01.1895, Blaðsíða 16

Dýravinurinn - 01.01.1895, Blaðsíða 16
Kjammi Kjammi hafði verið gæða rakki, viljugur og einkar vinfastur. Hann var alltaf sigeltandi, hvort sem var við hross eða fje, og á ýngri árum sín- um hafði hann farið hvert sem hann var sendur. Þegar jeg man fyrst eptir Kjamma, var þó fremur litið orðið eftir af öllum þessum góðu kostum. Hann var að sönnu enn þá kjörgripur við túnvörnina á vorin, einkum við lamb- ærnar, því hvorki beit hann nje elti, heldur lallaði á eptir þeim í hægðum sínum og gelti við hælana með sömu alvöru, elju og ákafa eins oghannhafði gert hin síðustu 12 éða 13 ár. Hann gengdi þó enn æfinlega, hver sem kall- aði, og fór með okkur únglíngunum út um tún, og upp um brekkur, en aldrei leingra en við sjálf, því þá var enginn kostur orðið að senda hann frá sjer, og aldrei fór hann eitt fet út af bænum með okkur. Einn maður var þó á heimilinu, sem ótrúlega lítið hafði af ellistirð- leik Kjamma að segja, og sá maður var Olafur föðurbróðir minn, sem nú er bóndi í Heiðarendakoti. Ilann hafði að mörgu leiti aðal umsjón með heirnil- inu og einkum lá fjárhirðingin að mestu á hans herðum. Aldrei hefur neinn rakki veriö húsbónda sínum trúrri og fylgispakari en Kjammi var Olafi. Það mátti svo að orði kveða sem rakkinn fyigdi honum hvert spor. Hann fór með honum til fjárins heima í hvert sinn, og smalaði Þórsmörk með honum vor og haust og synti þá ýmist yfir Markarfijót eða sat á hestinum fyrir aft- an hann. Hann fór aldrei svo frá bænum að Kjammi væri ekki með. Jeg man það að Kjammi var nokkrum sinnum lokaður inni á síðustu árum sín- um, þegar Ólaf'ur fór til fjalls, og er mjer það minnisstætt, hve illa rakkinn bar sig þá. Ólafur vildi þá hlifa rakkanum gömlum og lúnum við svostraung- um ferðum, en rakkinn gelti, ýlfraði og hljóðaði eða beinlinis veinaði og klór- aði í hurðina hvíldarlaust. Við reyndum að harka af okkur, sem heima vor- um, og urðum að hlýða á þetta, þó við sáraumkuðum hundinn. Loks kom sá tirpi, sem Ólafur hafði sagt að við mættum sleppa Kjamma út. Þá var merki- legt að sjá augu og svip hundsins. Hann var óumræðilega glaður og þakk-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dýravinurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dýravinurinn
https://timarit.is/publication/430

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.