Dýravinurinn - 01.01.1895, Page 34

Dýravinurinn - 01.01.1895, Page 34
V 28 Hestur Sveins lækis Pálssonar. Sveinn læknir Pálsson sagði svo sjálfur frá, að hann hefði eitt sinn farið úr Reykjavík svo drukkinn af »spönsku brennivini«, að hann vissi ekki sitt rjúkandi ráð. Það var urcrvetur og var frost rnikið; en hann ætlaði aust- ur yfir fjall, og var einn síns liðs. Þá er hann var kominn eitthvað nálægt Lyklafelli (Lítlafelli?), datt hann af baki, og vissi ekki af sjer um hríð. Hann raknaði við við það, að hestur hans stóð yfir honum, og var að nugga sjer við hann, til að vekja hann. Ætlaði Sveinu þá upp að standa, en gat ekki, því að hann 'var kalinn mjög á fótum. En er hesturinn sá það, að hann gat ekki upp staðið, lagðist hann niður hjá honum svo haganlega, að Sveiun gat bröltað á bak. Heldur hesturinn nú áfram sem leið lá austur Dyraveg; en ekkert vissi læknirinn, hvað hann fór, og ljet hestinn ráða. Fór klárinn nú svo hart sem hann gat, svo að lækninum væri óhætt á baki hans, og ljetti ekki ferðinni fyr hann kom á hlað á bæ. Ekki komst lækuirinn af baki, en hesturinn fór þá fast upp að bæjardyrunum, svo að læknirinn gat náð til að berja í þilið með svipu sinni. Var þá komið út og Sveinn borinn inn, og látinn upp í rúm og þíddur. Þetta var í Grafningi, en ekki man jeg á hverj- um bæ. Svo vildi til, að þar bjó yfirsetukona, sem Sveinn læknir hafði áður kennt, og þótti góð að hjúkra veikum. Þótti honum það hafa happalega til- tekist, úr þvf sem gjöra var, og þakkaði það hesti sínum. Kvaðst hann eptir það seint mundi heyra þær sögur af viti hesta, sem hann ekki tryði. Hestur Ófeigs hreppstjóra Vigfússonar. Sú sögn er um hest þann, er bar lik Ófeigs Vigfússonar, hins rlka, á Fjalli á Skeiðum til grafar, að þá er líkkistan var tekin af honum og látin upp i ferjubát, er ferja skyldi líkið yfir Hvítá upp í Skálholt, þá hafi hann greinilega tárfellt; og sáu það margir þeir, er við voru. Hestar fyrirfara sjer. Sagt er, að hestur nokkur, er hafður var til að bera fjárhlut frá skipi í Ilúsavík nyrðra, hafi eitt vor, er hann sá skip koma utan af hafi, stokkið í burtu, og fyrirfarið sjer, af kvíða fyrir því að bera frá skipinu. Eitt sinn var sagt svo hestur (á Skeiðum eystra) heyrði: »Þessi á nú að falla á morgun«. Þá tók hann viðbragð, stökk út i haga og týndi sjer jafnskjótt í dýi.

x

Dýravinurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dýravinurinn
https://timarit.is/publication/430

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.