Dýravinurinn - 01.01.1895, Blaðsíða 38

Dýravinurinn - 01.01.1895, Blaðsíða 38
32 Tík hefir trog fyrir bát- Það vildi til fyrir æðimörgum árum á einum bæ hér í Eyjafirði, að vatn hljóp inn um vegg inn í bæinn; það var hláka og mikil leysing, og urðu menn ekki varir við vatnið af því að þetta var um nætrtíma. Tík lá þar á hvolpum í eldhúsinu. Um nóttina vaknar fólkið i baðstofunni við það að tík- in ólmast og geltir fyrir framan baðstofudyrnar, og lætr mjög ófriðlega; var svo farið á fætr, og urðu menn þess brátt varir hvers kyns var, að bærinn var orðinn hálffullr af vatni. Enn þegar komið var í eldhúsið, flaut þar trog eitt á vatninu, og báðir hvolparnir í troginu. Hafði tíkin látið þá upp í trog- ið áðr enn hún fór inn, til þess að vera viss um, að þeim væri borgið. Tík- in hefir auðsjáanlega farið yfir vatn á ferju, eða að minnsta kosti séð ferjað, og þannig dottið í hug að nota trogið fyrir bá.t. Kisa beiðist gistingar. Fyrir nokkurum árum vaknaði bóndinn á einum af hraunbæjunum framarlega í Kelduhverfi eina nótt við það, að köttr ólmast og mjálmar sárt á glugganum hans; rigning mikil var úti og veðr ið versta. Bóndi var dýra- vinr, og smeygði sér í eitthvað af fötum, og íór út; enn þegar hann opnaði bæinn, var þar úti fyrir ókunnugr köttr með tvo litla ketlinga, sem voru ný- lega farnir að sjá, og mjálmaði upp á bónda. Hann tók vel á móti kisu, og veitti henni húsaskjól. Litlu síðar spurðist það upp, að læða þessi átti heima þar úti á bæjunum, og hafði hana vantað lengi; hafði hún séðst um sumarið í hrauninu nokkuð írá þessum bæ, sem hún leitaði gisingar á. Þegar óveðrið kom, hefir henni þótt óvistlegt í hrauninu, og borið ketlingana á víxl spöl og spöl, þangað til hún var komin heim að bænum. Enn ekki hefir henni þótt nóg að ná húsum, heldr tekið það eftir mönnunum að fara upp á glugga þótt á ókunnugum bæ væri. Þar sem annars er títt að opna glugga, venjast kett- ir oft á að koma á þá og beiðast inngöngu, enn ekki veit eg önnur dæmi enn þetta fyrir því, að þeir hafi gert það annars staðar enn heima. Hundur gsetir barns. Það eru að eins örfá ár síðan, að hjón bjuggu á einum af fremstu bæjunum í Eyjafirði; einu sinni um haust voru ærnar komnar heim, og átti að hreinsa þær, enn fátt var þar manna, og stóð svo á, að fárra vikna gam- alt barn, sem hjónin áttu, svaf í rúmi í baðstofunni, enn búrakki bónda svaf undir borðiriu. Konan var viss um, að þó að barnið kynni að vakna, væri því engi hætta búin með að velta íram úr; fór því konan til húsanna, og
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dýravinurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dýravinurinn
https://timarit.is/publication/430

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.