Heimir - 01.07.1910, Side 35

Heimir - 01.07.1910, Side 35
HEIMIR 275 sé alls ekki á rieinum sannsögulegum grundvelli býgð. í 4 og 5 kap. er tvöföld frásögn af undirokun Israelsmanna undir Jabín konung í Hazór og dauöa Sísera herforingja hans; önnur frá- sögnin er í bundnu máli, hin í óbundnu. í kvæöinu eöa Sigurljóöum Debóru, eins og þaö er nefnt, er herferðinni á móti Sísera undir forustu Baraks lýst. Lýsingin á viðburöunum, sein áttu sér staö og ástandinu ytirleitt er bæði ljós og náttúrleg. Fræöimönnum ber saman um, aö í þessu kvæði sé hiö elsta, sem til er af hebreskum bókmentum aö finna. í frásögninni í óbundna inálinu, sein auösjánlega er grundvölluö á kvæðinu, má finna nokkrar ininni háttar frábreytingar, en yfir- leitt er hún þó eins og frásögnin í kvæðinu. Sagan af Gídeon í 6—10 kap. er ákaflega flókin. I henni er efni, sem bætt hefir veriö viö eftir aö sagan sjálf var fullmynd- uö. Fyrsti hluti sögunnar 6, 1 1—24 segir frá köllum Gídeons, en næsti hluti, vers 25—33 stendur í engu sambandi viö, og er jafnvel gagnstæöur því sem á undati er fariö. Síöan heldur sagan áfram til kap. 8, 4, þar slitnar hún aftur, og frásögn, sem ætti aö vera fyrst í sögunni byrjar. Sagan af Samson, Kap. 13 —16 gefur miklu nákvæmari lýsingu af söguhetjunni en nokkur hinna. llún kemurekki eins vel heim viö skoöun deutorónómiska útgefáns og hinar Hinn vanalegi formáli og eftirmáli finnast aö vfsu, en sagan sjálf er þýöingalaus fyrir tilgang þann sem lýsir sér í þeim. Sagan tilheyrir aö líkindutn hinum allra elstu munnmælum. Samband þaö á milli Israelsmanna og Filisteanna, sem hún sýnir, bendir á aö liún sé mjög gömul. Síöast í 3 kap. fyrst í 10 og seinast í 12 er, í fám orðum, sagt frá 9 dómurum, sem nefndir eru smærri dómararnir. Fkkert er sagt um nokkur hreystiverk í sambandi viö þá. Þess hefir veriö getiö til, aö nöfnuin þeirra hafi veriö bætt inn síðar, til aö fylla út tímabiliö frá eyðimerkurförinni til musterisbyggingarinn- ar, 480 ár. Saganaf Míka í i7og i8kap eralveg sérstök. Hún kemur engan vegin heim viö tilgang deuterónómíska útgefandans Frá ööru sjónarmiöi skoöaö er sagan samt sem áður afar eftirtektar-

x

Heimir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimir
https://timarit.is/publication/440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.