Heimir - 01.07.1910, Qupperneq 35
HEIMIR
275
sé alls ekki á rieinum sannsögulegum grundvelli býgð. í 4 og 5
kap. er tvöföld frásögn af undirokun Israelsmanna undir Jabín
konung í Hazór og dauöa Sísera herforingja hans; önnur frá-
sögnin er í bundnu máli, hin í óbundnu.
í kvæöinu eöa Sigurljóöum Debóru, eins og þaö er nefnt,
er herferðinni á móti Sísera undir forustu Baraks lýst. Lýsingin
á viðburöunum, sein áttu sér staö og ástandinu ytirleitt er bæði
ljós og náttúrleg. Fræöimönnum ber saman um, aö í þessu
kvæði sé hiö elsta, sem til er af hebreskum bókmentum aö finna.
í frásögninni í óbundna inálinu, sein auösjánlega er grundvölluö
á kvæðinu, má finna nokkrar ininni háttar frábreytingar, en yfir-
leitt er hún þó eins og frásögnin í kvæðinu.
Sagan af Gídeon í 6—10 kap. er ákaflega flókin. I henni
er efni, sem bætt hefir veriö viö eftir aö sagan sjálf var fullmynd-
uö. Fyrsti hluti sögunnar 6, 1 1—24 segir frá köllum Gídeons,
en næsti hluti, vers 25—33 stendur í engu sambandi viö, og er
jafnvel gagnstæöur því sem á undati er fariö. Síöan heldur
sagan áfram til kap. 8, 4, þar slitnar hún aftur, og frásögn, sem
ætti aö vera fyrst í sögunni byrjar.
Sagan af Samson, Kap. 13 —16 gefur miklu nákvæmari
lýsingu af söguhetjunni en nokkur hinna. llún kemurekki eins
vel heim viö skoöun deutorónómiska útgefáns og hinar Hinn
vanalegi formáli og eftirmáli finnast aö vfsu, en sagan sjálf er
þýöingalaus fyrir tilgang þann sem lýsir sér í þeim. Sagan
tilheyrir aö líkindutn hinum allra elstu munnmælum. Samband
þaö á milli Israelsmanna og Filisteanna, sem hún sýnir, bendir
á aö liún sé mjög gömul.
Síöast í 3 kap. fyrst í 10 og seinast í 12 er, í fám orðum,
sagt frá 9 dómurum, sem nefndir eru smærri dómararnir. Fkkert
er sagt um nokkur hreystiverk í sambandi viö þá. Þess hefir
veriö getiö til, aö nöfnuin þeirra hafi veriö bætt inn síðar, til aö
fylla út tímabiliö frá eyðimerkurförinni til musterisbyggingarinn-
ar, 480 ár.
Saganaf Míka í i7og i8kap eralveg sérstök. Hún kemur
engan vegin heim viö tilgang deuterónómíska útgefandans Frá
ööru sjónarmiöi skoöaö er sagan samt sem áður afar eftirtektar-