Heimir - 01.07.1910, Side 46
286
HEIMIR
af sér hattinn og hengdi hann upp. En augu móöurinnar höföu
vakiö upp mótstööuna, sem var í henni sjálfri. Gagnstæöar
tilfinningar brutust upp; hún vildi hylja þaö, hún vildi reyna aö
ná sér aftur, hún hallaöi sér þess vegna á bekkinn og sneri sér
til hliöar, og rétt á eftir lagöist hún endilöng niður á bekkinn.
Eftir litla stund heyrði móöirin aö hún grét og sá þaö líka á
hreyfingunum á bakinu á henni.
Rétt á eftir fann dóttirin bera hendi móður sinnar undir
höföinu á sér. Hún skaut undir þaö svæfli. Þetta gjörði henni
hughægra; aö finna aö móðirin vildi, aö hún svæfi—Þaö eitt var
svo gott. Já, hún var hræðilega syfjuö. Og eftir fáeinar
mínútur var hún sofnuð.
Alþjóðaþing frjálstrúarmanna.
Alþjóöaþing frjálstrúarmanna, sem haldið var í Berlín á
Þýskalandi í ágúst síðastliönum, er hiö fiinta þesskonar þing
sem únítarakyrkjan á Englandi og í Ameríku hefir staöiö fyrir.
Þetta þing, eins og öll hinna, er aö mestu leyti sótt af únítörum,
þó einnig hafi mætt á þeim frjálslyndir menn frá ýmsum ööruni
trúflokkum. Mr. Charles W. Wendte, sem er launaöur embætt-
ismaður Ameríska Unitarafélagsins, hefir veriö skrifari þinganna
og haft á hendi allan undirbúning þeirra. Þaö þykir rétt aö
taka þetta fram hér, vegna þess aö hvorki síðustu “Breiðublik”
né önnur íslenzk blöö. sem um þingið hafa getiö, hafa tekið
fram meö einu oröi undir hverra umsjón og fyrir hverra forgöngu
þingiö er haldið, Slík ónákvæmni í fréttum er vítaverð, vegna
þess aö hún getur oröiö orsök til misskilnings; en tfalaust er
hér urn þekkingarskort aö ræöa. Annars veröur aö geta þess
sem gert er, hver sein hlut á að ináli.
Heimir vonar aö geta skýrt nánar frá gjöröum þingsins næst. ^