Heimir - 01.07.1910, Síða 47
H E I M I R
287
Til kaupenda Heimis.
MeS þessu blaði er sjötta árgangi Heirnis lokið. Nokkur
dráttur helir oröiö á útkomu blaösins í sumar, sem að tnestu
leyti helir stafað af annríki prentaranna. Þann drátt eru kaup-
endurnir beðnir að fyrirgefa. Framvegis mun veröa reynt af
fremsta megni að láta blaöið korna út á réttum tírna.
Um leiö og útgáfunefndin þakkar öllutn þeim, serri hafa
borgaö blaöið fyrir skilvísina, og sömuleiðis öllum þeim, sem á
einhvern hátt hafa hlynt aö útbreiöslu þess, vill hún vinsamleg-
ast mælast til þess, aö þeir sem nú skulda því, reyni sem fyrst
að standa í skiluni. Frá fjárhagslegu sjónarmiði er ekki um
annað hugsað en að reyna að láta blaðið bera sig, en til þess að
það geti það þurfa allir kaupendur þess að borga það.
Treystandi því aö menn sjái þetta byrjum vér sjöunda ár-
ganginn og inunum gera oss alt far um að gera hann eius vel úr
garði og oss er framast unt.
Tvö smákvæði.
Eftir Goethe.
I fjarlægð
Ertu burtu farin frá mér?
Flúöir þú mig snótin blíða?
Ennþá hljóma í eyrum mínum
iorð þitt hvert, og röddin þýða.
Eins og þá um árdags stundu
aúgum rennir ferðamaður,
<er hátt í bláum himingeimi
hulinn, syngur fuglinn glaður: