Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1916, Page 31
JÐUNN]
Magnús Stephensen: Sólin og Sirius.
231
Tökum t. d. björtustu stjörnuna, Sirius.1) Vér
getum með tilraunum ákvarðað, liversu mörgum
sinnum sólarljósið er bjartara en ljós Siríusar. Satt
er það, að vér getum eklci gert þennan samanburð
beinlínis, því að í björtu dagsijósi sést Siríus ekki, livað
þá heldur að Ijósið frá honum verði mælt. En vér
getum tekið tunglið sem millilið milli ijóma sólar-
innar og bliksins frá hinni björtustu stjörnu. Menn
hafa komist að raun um, að Ijósið frá sólunni er
hér um bil (500,000 sinnum bjartara en Ijósið frá
fullu tungli. Siríus og fult tungl má bera saman, og
með hæíilegum tjósmælum má mæla Ijósmagnið
frá báðum þessum hnöttum. I'að má sýna fram
á það, að tjósið frá hér um bil 33,000 stjörnum,
jafnbjörtum og Siríus, mundi bera jafnmikla birlu
eins og full tungl. Á þennan hátt höfum vér þær
tölur, sem vér þurfum á að halda, til þess að bera
saman skin sólarinnar og skin Siríusar, og það þarf
ekki lengra að fara til þess að sjá mismuninn. Ljósið
frá sólunni er bér um bil 20,000 milíón sinnum
meira en Ijósið frá Siríusi.
En sýnir þessi samanburður réttilega hið sanna
ijósmagn sólarinnar og Siríusar, tivors um sig? Mun-
urn eftir, hvar vér erum staddir. Jörð vor er nærri
sólunni, en mjög langt frá Siríusi; hún er ekki á
réttum stað, til þess að vér getum hlutdrægnislaust
borið saman skin sólarinnar við skin Siríusar. Til
þess að gera þennan samanburð réttilega, ælti jörðin
eð vera miðja vega milli beggja hnaltanna, svo að
vér gætum borft á Siríus öðru megin og sólina hinum
uiegin, þannig að þau stæðu alveg jafnt að vígi. í
slíka afstöðu hefir jörð vor aldrei komist og mun
uldrei komast. Hvernig á þá að fara að lil að gera
1) Flestir munu þekkja Sirius (liundastjörnuna), cn þeir sem ekki
þekkja liann, munu þó þekkja Fjósakonurnar, og ef dregin er lina gegn-
11 ni Þ*«r niður á við til vinstri, lendir liún rétt lijá Sirius.