Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1916, Page 73
IÐUN'N ]
Fyrirboðar.
273
í)f því, sem hann var sannfærður um, að Júlía liefði
lálið sig skrifa, hefir verið gefið út á íslenzku í bók,
sem heitir »Eflir dauðann. Bréf frá Júlíu«.
Eg segi ykkur þá fyrst frá skriflegu fyrirboðunum.
Frá þeim fyrirboðanum, sem ég telc fyr, hefir Slead
sagt í rilgerð: »How I know the dead return« (»Hvernig
ég veit, að framliðnir menn koma aftur«), sem fyrst
var prentuð í einu af merkuslu tímaritum Englend-
inga, »Fortnightly Iieview«, í Janúar heflinu 1909,
og samtimis í ameríska blaðinu »New York American«;
þar á eftir í ýmsum ritum í ýmsum löndum. Slead
segist svo frá:
Fyrir nokkrum árum var í þjónustu minni merki-
lega gáfuð stúlka, með mjög vanstilla skapsmúni og
alt annað en heilsuhraust. Hún varð svo örðug, að
einu sinni í Janúarmánuði var ég alvarlega að hugsa
um, að losa mig við liana. Þá rilaði Júlía með
hendinni á mér: »Vertu mjög þolinmóður við E. M.;
hún kemur yfir um Lil okkar áður en árið er liðið«.
Mér varð nokkuð hverft við, því að ekkert hafði
komið fyrir, sem hefði getað komið mér til þess að
halda, að hún mundi deyja bráðlega. Eg leyndi þessu
skeyti, og hélt áfram að hafa hana í þjónustu minni.
Það var 15. eða 16. Janúar, að þessi viðvörun kom.
Húu kom aftur í Febrúar, Marz, Apríl, Maí og
Júní; í hvert skifti var viðvörunin rituð eins og
nokkurs konar minnisgrein innan um nokkuð langt
mál um önnur efni: »Mundu það, að E. M. fer yfir
um, áður en árið er liðið«. í Júlímánuði gleypti E.
M. smánagla í gáleysi. Hann settist að í botnlangan-
um, og hún varð liætlulega veik. Tveir læknar stund-
uðu hana, og þeir hjuggust ekki við því, að henni
Uiundi batna. Einu sinni, þegar Júlía var að skrifa
með hendinni á mér, sagði ég: »Ég geri ráð fyrir, að
Það sé þella, sem þú sást fyrir, þegar þú spáðir þvi,
að E. M. mundi fara yfir um«. Mér til óendanlegrar