Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1917, Side 86
276
Ritsjá.
| IÐUNN
fræðingar, sem þeir kunna að vera í sinni grein? Hér var
þó nógum góðum mönnum á að skipa: Sig. Sigurðssyni,
skólastjóra á Hólum, sem hefir gert skógrækt vorri einna
langmest gagn með skógræktartilraunum sinum norðan-
lands, sem eru hinar fcgurstu; grasafræðingnum dr. Helga
Jónssyni og síðast en ekki sízt sjálfum Guðm. Bárðarsyni.
En þetta var nú að eins útúrdúr, sem manni þó ósjálfrátt
dettur í hug við lestur bæklings þessa. A. H. B.
Vestan um haf. Smávegis um Ameríku og
landa vestra. Eftir Magnús Jónsson, prest á Isa-
firði, Rvk. 11)16.
Skilmerkilega og vel ritaður bæklingur, er virðist gefa
mönnum glögga, en þó líkl. ekki alveg óhlutdræga mynd af
landsháltum, lífi og högum Landa vestra. Fyrst lýsir höf.
agentunum, bæði þeim lifandi og þeim dauðu, mönnunum,
blöðunum og bréfunum, sem toga menn vestur. Siðan fer
hann að lýsa landsháttum og veðurfari, þá Löndunum, hátt-
um þeirra og venjum, og er sá kaíli einkar skemtilegur aflestr-
ar. Þá máli Landa, andlegu lifi þeirra og trúmála-þrefi, og loks
lofdýrðar-vindinum í Ameríku í samanburði við barlóms-
bumbuna, sem sífelt hefir verið barin hér heima. Að lok-
um vikur hann að þeirri spurningu, hvort íslendingar eigi
að flyljast vestur og telur hann vestuifarir, eins og nú er
komið, heimsku eina, nema ef til vill fyrir þann, sem
kominn er i algert »strand« hér heima. Eg get ekki
lagt neinn dóm á frásögn höf., en ekki minnist ég að
hafa séð jafn góða hugvekju eða jafn skilmerkilega frá-
sögn um lif Landa vestra. Og ef nú væri lengur nokkur
þörf á að »bólusetja« menn fyrir vesturheimsferðum, þá
væri hér fundið nýtt, staðgott og áhrifamikið bóluefni. En
ég trúi því ekki, að marga fýsi vestur úr þessu eins mörg
og framfaraskilyrðin virðast orðin nú hér á landi.
A. H. B.