Iðunn : nýr flokkur - 01.07.1925, Qupperneq 20
178
Þorsleinn Jónsson:
ÍÐUNN
gable«. Fylgdu honum 4 hraðskreið orustuskip, hin nýj-
ustu er Bretar áttu er hétu >Barham«, »Valiant«, »Ma-
laya« og »Warspite«, öll vopnuð 15 þuml. fallbyssum,
8 hvert, auk smærri vopna. Flest smærri skipin voru
og með Beatty. Samtímis hélt ]ellicoe af stað frá Scapa
með 24 orustuskip, auk smærri skipa. Hélt Beatty með
fullum hraða austur haf, og drógust orustuskipin 4, er
með honum voru nokkuð aftur úr vígdrekunum. ]ellicoe
fór aftur á móti í hægðum sínum og drógst mikið aftur
úr, sigldi hann alls ekki með fullri ferð og hefir hann
síðar fengið ámæli fyrir það, og talið glappaskot. Víg-
drekar Beattys voru allir vopnaðir 13,5 þuml. fallbyss-
um. — Hafði hann fengið vitneskju um það hvar
hann mundi hitta-vígdrekaflota Hippers og stefndi beint
þangað. —
Hipper hélt norður með ]ótlandi, alldjúpt, með 5 víg-
dreka, »Liitzow«, »Derfflinger«, »Seydlitz«, »Moltke«
»Von der Tann«. Voru þeir allir vopnaðir 12 þuml. fall-
byssum. Þýsku skipin höfðu það fram yfir hin bresku,
að þau gátu betur snúið fallbyssum sínum og skotið í
allar áttir. Varð þeim það til mikils hagnaðar í orust-
unni.
Þjóðverjar höfðu áður sent flesta kafbáta sína að
Skotlandsströndum, áttu þeir að njósna um flota Breta.
En þeir urðu alls ekki varir við er flotinn lét í haf, og
kom Þjóðverjum því engin njósn.
Það var 31. maí kl. 1,20 síðd. er flotar Beattys og
Hippers urðu fyrst varir hver annars. Þjóðverjar höfðu
ekki búist við að mæta vígdrekum Beattys svo snemma
dags, því síður að honum fylgdu orustuskipin 4, enda
hafði Hipper engan kraft til að mæta þeim báknum.
Báðir urðu hvors annars varir með flugvélum er þeir
sendu að njósna. ]ellicoe var svo langt á eftir að Þjóð-