Kirkjuritið - 01.04.1935, Blaðsíða 26
146
Árni Sigurðsson: Stanléy Jones. Kirkjuritið.
styrjöldum þar í landi. Auk þess sem séra Friðrik Hall-
grimsson hefir frá þeirri bók sagt, birtist i síðasta
„Prestaíelagsriti“ kafli úr henni, þýddur af Ásmundi
Guðmundssyni háskólakennara. Heitir sá kafli: „Mak-
ræði eða manndómur“. Hvert lilutskiftið af þessu
tvennu dr. Jones hefir kosið sér, vildi ég hafa gert að
nokkru ljóst í þessu stutta ágrips-erindi. Hann sér
sannan kristilegan manndóm í því, að taka á sig kross-
inn og fylgja Kristi öruggur. Hann segir, að Kristur hafi
opinberað nýja og réttari afstöðu til þjáninga lífsins,
en önnur trúarbrögð hafi að bjóða, og að það sé fagn-
aðarerindið, eitt allra trúarbragða, sem þori að halda
því fram, að þjáningin sé þeim, er henni kunni að taka,
gjöf frá Guði.
Þetta er djörf lcenning, sem að visu eggjar til and-
mæla, kenning, sem menn munu ekki alment fúsir að
samþykkja. En liér getur dr. Jones sjálfur djarft úr
flokki talið, þótt ekki sé það á allra færi. Hann hefir sjálf-
ur sýnt, að hann vill fylgja Kristi, hvað sem það kostar
liann. Öllum inannvirðingum og> makræði hefir hann
afsalað sér, og haldið þá leið heilagrar manndáðar og
manndóms, sem samvizka hans óg sannfæring hauð. Til
þess að geta verið i för með Kristi i Asíu, hefir liann ætíð
hlýtt himnesku röddinni, og látið hana ráða úrslitum
og örlögum ævi sinnar. Gáfur sínar og lærdóm, dulvísi
sína og innsæi hefir hann lagt sem sjálfviljafórn á altari
Krists. Þessi afreksmaður i hópi kristniboða nútímans,
hefir ekki aðeins myndað sér rökfastari og raunréttari
skoðun á kristindómsþörf heimsins, en þeir flestir
starfsbræður hans, heldur hefir hann og, fremur þeim
flestum, svarað rödd drottins síns í dáðrikri fram-
kvæmd og sagt: Hér er ég, herra, send þú mig!
Árni Sigurðsson.