Kirkjuritið - 01.04.1935, Side 31
Kirkjuritið.
Víkurkirkja.
151
garðsins og einn af forgöngumönnum kirkjumálsins frá
byrjun, Ólafur J. Halldórsson. Var garðurinn vígður
við jarðarför lians 31. júlí s. 1. Honum fylgdi þökk og
virðing og söknuður alls safnaðarins. En af kirkjubygg-
ingunni er það að segja, að unnið var í alt sumar og
var kirkjan fullgjör að öllu leyti í byrjun okt. s.l.
Ekki þykir ástæða til að fara út í nákvæma lýsingu
kirkjuhúss þessa. Enda gefa meðfylgjandi myndir
sennilega hugmynd um útlit alt. Þó skal þessa getið:
Kirkjan er úr steinsteypu með sérstæðum kór og turni.
Ekki er í henni loft nema fyrir söngfólk og orgel. Gólf
er úr timbri, svo nefndri Origo’n-furu, kvistlausu, og út-
litsfögru efni, sem lakkað er yfir með gólflakki. Fer það
ágætlega. Bekkir eru þægilegir með hallandi baki.
Prédikunarstóll er talsvert upphækkaður, og er þiljað
frá honum að suðurvegg og verður því bak við liann
skrúðhús. Kirkjan er raflýst og hituð með afli frá raf-
stöð Víkurbúa. Yfirleitt má segja, að til alls hafi verið
vandað, og er vinna öll vel og smekklega af hendi leyst,
steypuverk, smíði og málning. Þó er alt látlaust og tild-
urslaust. Mun og kirkja þessi teljast með veglegustu
kirkjum landsins utan hinna stærri kaupstaða. Munu
margir íelja það sízt of mælt. Er hún til sóma öllum
þeim, Sem að henni hafa starfað og söfnuðinum í heild.
Hún rúmar um 200 manns i sæti. Yfirsmiður var Matti-
as Einarsson frá Þórisholti, og er frágangur kirkjunn-
ar honum til verðugs lofs.
Kostnaður við bygginguna hefir orðið um 30 þús. kr.
A-f þessari upphæð skuldar kirkjan kr. 10 þúsund, eða
Vs hluta. Hitt fjeð, eða 20 þús., hefir safnast með gjöf-
um i peningum og vinnu, með hlutaveltum, samkomum
°g áheitum. Verður þetta að teljast þrekvirki af ekki
stærri söfnuði — rúmlega 300 manns. Að sjálfsögðu
eru framlög misjöfn, eftir efnum og ástæðum. En þess
verður að geta, að þeir, sem efnin höfðu, hafa ekki af
ser dregið. Áhuginn var almennur og nærri undantekn-