Kirkjuritið - 01.07.1937, Síða 10
218
Jón Helgason:
Kirkjuritið.
að inn að ganga i guðsríki". Hvert einasta tímabil i sögu
mannkynsins hefir átt af einhverjum þrengingum að
segja og hefir getað talað um „þrengingar nálægs tima“
engu síður en postulinn forðnm. Og vissulega getum
vér, sem nú lifum, talað svo engu síður en feður vorir,
er vér minnumst alls ófriðarins, ólgunnar og ófagnað-
arins, sem nú ríkir í heiminum. En þótt ekki væri þelta,
þá verður svo óendanlega margt til þess að minna ein-
mitt boðendur orðsins á, að kirkjan, sem þeir þjóna, er
„stríðskirkja“ og hlýtur að vera það meðan syndin
drotnar í lieiminum með öllum hennar ófögnuði. Því
að einmitt orðsins þjónar eru öðrum fremur til þess
kallaðir að berjast með vopnum orðsins og andans gegn
öllum öflum vonzkunnar, sem virðast fá meira og meira
vald yfir lmgum svo margra manna á nálægum tíma og
stjórna gjörðmn þeirra og áformum. Fyrir því verður
svo óendanlega margt til þess að raska rósemi þjón-
ustumanna Guðs og húa þeim þungar áhyggjustundir,
sérstaklega þeim, sem trúlega vilja rækja köllunarverk
sitt, og hættan ávalt nálæg, að þeir þreytist og enda
gefist upp i haráttunni. En því indælla er til þess að
lmgsa, að oss er gefið fyrirheit um frið fyrir sálu vora,
ekki aðeins um frið sabhatshvíldar á hinmum, að lok-
inni baráttu og' enduðum dögum liérvistar vorrar, held-
ur og um frið meðan á sjálfri haráttunni stendur, um
frið sem einn lið þeirrar hlessunar, er drottinn hefir
heilið þeim, sem gefast honum í harnslegu trausti til
iiáðar Iians. En þetta er hinn innri friður hjartans, frið-
urinn i heilögum anda, sem drottinn Jesús hét læri-
sveinum sínum að skilnaði. Ég veit ekkert eftirsóknar-
verðara fyrir orðsins þjóna en að eiga þennan frið heil-
ags anda i sem ríkustum mæli. Og því verður það sú
árnaðaróskin þér lil handa, sem mest áherzla hvílir á,
að drottinn megi um ófarna æfidaga upplyfta auglili
elsku sinnar og trúfesti yfir þig, svo að blessun friðar-
ins frá honum megi í æ ríkari mæli l'alla þér í skaut