Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.01.1950, Page 21

Kirkjuritið - 01.01.1950, Page 21
NÝ KIRKJA í MÖÐRUDAL 19 ari og fyllri að vöngum en mig minnti að hún hefði ver- ið, og kvað Jón svo vera. Þetta væri með vilja gjört. Sér Möðrudalur á Fjöllum. virtist það fegurra, enda munu ýmsir listamenn okkar hafa sams konar smekk. Ein mynd dró þó sérstaklega að sér athygli mína. Hún var af Kristi, þar sem hann situr á einum Möðrudalshnúka og fólkið stendur undir í lest °g hlýðir á boðskap hans. Sá ég þegar, hvað myndin ætti að tákna: Fjallræðuna. Var yfir henni svo heilög ein- feldni og tilbeiðsla, að mér hlýnaði um hjartarætur. Skildi ág, að þetta myndi eiga að vera altaristafla í Möðrudals- hirkju hinni nýju, sem nú var í smíðum. Við gengum út aftur að skoða hana. Ég spurði, hver hefði gjört uppdrátt að kirkjunni. „Það hefir enginn gjört“, sagði Jón, „ég hefi bara hugsað mér hana svona. Þegar búið er að fullgera hana, getið þið tekið ljósmynd af henni, ef þið viljið, og haft hana fyrir uppdrátt." Læt ég nú Jón bónda sjálfan segja frá.

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.