Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.01.1950, Page 57

Kirkjuritið - 01.01.1950, Page 57
Séra GuSmundur Sveinsson: Heimsókn til heimatrúbo ðsins danska. Því verður ekki neitað, að orðið „heimatrúboð“ hefur undar- legan hljóm í eyrum flestra íslendinga. Ekki þó vegna þess, að þeir viti svo mikið, hvað heimatrúboð er eða hvernig það starfar, heldur af hinu, að þeir eru vanir að setja það í sam- band við ofstæki í trúmáladeilum og varla sæmilegt orðbragð um andstæðingana. Með allri virðingu fyrir starfi heimatrú- boðsmanna á íslandi, sem sjálfsagt hefir mörgu góðu til vegar komið, hafa þeir í málgagni sínu, Kristilegu vikublaði, valið sér furðulega hrjúfan tón í ritmennsku sinni, sem á að minna á spámannlega umvöndunarsemi. Það er þess vegna ekki ósennilegt, að undirrituðum hafi verið dálítið undarlegt innanbrjósts, þegar hann tók boði sr. Finns Tuliniusar, sem er að góðu kunnur heima frá dvöl sinni þar sumarið 1948, að taka þátt í fundi hjá prestafélagi danska heimatrúboðsins á Norður-Sjálandi. Fundarstaðurinn var lítill en snotur bær á Norður-Sjálandi, Melby að nafni. Flestir komu prestarnir með lestum víðsvegar frá, og margir höfðu þurft að vera snemma á fótum til þess að geta náð til Melby í tæka tíð. — Það, sem mig fyrst furðaði á í sambandi við boðið til þessa prestafélagsfundar, var það, að mér var sagt að taka konuna með, og flestar prestskon- urnar fylgdu mönnum sínum. Prestskonurnar þurfa ekki síður en prestarnir að kynna sér og taka þátt í umræðum um andleg mál, þær þurfa stundum ekki síður en þeir að annast sálu-

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.