Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.01.1950, Síða 68

Kirkjuritið - 01.01.1950, Síða 68
66 KIRKJURITIÐ frá 27. júní 1941. Sjái þessir aðilar sér ekki fært að fram- kvæma heimildarlögin, þá geri þeir tillögur um þegn- skyldulöggjöf, sem betur henti þjóð vorri, eins og nú hagar til, t. d. að ríkið efni til framkvæmda, svo sem við ræktun og byggingu nýbýla á völdum stöðum með þegnskylduvinnu. 2. Þegnskyldumálið verði tengt skólalöggjöfinni á þá leið, að síðasta ár skólaskyldunnar verði notað til verknáms í þegnskylduanda. Beinir fundurinn þessari ályktun til menntamálaráðuneyt- isins, og heitir á hin ýmsu félagssamtök í landinu að taka þegnskyldumálið til rækilegrar umræðu og ályktana. n. Fundurinn telur skógræktina, hvort sem er til prýði eða nytja, mikilvæga framtíðar- og menningarstarfsemi. Telur hann, að leggja beri mjög aukna áherzlu á skógræktarmálin í náinni framtíð, og hvetur alla til að leggja þeim lið. Fundurinn mælir með þeirri hugmynd, að gera skógrækt að skyldunámi skólum landsins, enda leggi ríkið til plöntur til gróðursetningar með hóflegu verði. m. Fundurinn lítur svo á, að mikil þörf sé á auknu starfi til eflingar kirkju og kristnilífi í landinu, og hvetur bæði kenni- menn og leikmenn eindregið til stærri átaka á þessum vett- vangL IV. Fundurinn telur þá stefnu heillavænlegasta í guðfræði sem öðru, að ganga ávallt og óttalaust því á hönd, „sem sannara reynist", samkvæmt rannsókn, rökum og beztu þekkingu hvers tíma. Það er von fundarins og bæn, að jafnframt því, að hin ís- lenzka þjóð gerir kröfu til að vera stjórnarfarslega frjáls, megi hún bera giftu til að rísa undir hinum vegsamlega vanda andlegs frelsis. Mótinu lauk með guðsþjónustu í Húsavíkurkirkju. Séra Pétur Sigurgeirsson prédikaði. Friörik A. Friðriksson.

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.