Kirkjuritið - 01.07.1954, Page 58

Kirkjuritið - 01.07.1954, Page 58
344 KIRKJURITIÐ Byggingu prestsseturshúsa miðar mjög hægt áfram og öðr- um húsabótum á prestssetrum. Veldur því f járskortur. Sú upp- hæð, sem Alþingi veitir, er svo lág, að með öllu er óviðunandi, og hefir orðið að taka lán til þess, að framkvæmdir stöðvuðust ekki. Lokið er nú að miklu byggingu prestsseturshúsa að Reyni- völlum, Árnesi, Sauðlauksdal og Kálfafellsstað. Prestsseturshús að Fellsmúla cg Hólmavík eru í byggingu. Samkvæmt skýrslu söngmálastjóra hafa alls verið stofnaðir í landinu 175 kirkjukórar, þar af 9 á þessu synodusári. Hafa kóramir annast kirkjusöng og auk þess haldið sérstakar söng- skemmtanir í héruðunum, 135 alls, og hafa 70 kórar tekið þátt í þeim, alls frá upphafi 1086 söngmót og söngskemmtanir. Söngmót kirkjukórasambanda voru þessi á árinu: 1. Eyjafjarðarprófastsdæmis 5. júlí (9 kórar). 2. Borgarfjarðarprófastsdæmis 21. febrúar (7 kórar). 3. Mýraprófastsdæmis 4. apríl (5 kórar). 4. Dalaprófastsdæmis 9. maí (4 kórar). 5. Eyjafjarðarprófastsdæmis 30. maí (7 kórar). Söngskóli þjóðkirkjunnar starfaði frá 1. nóvember til 1. maí. Skólastjóri var eins og áður Sigurður Birkis söngmálastjóri. Auk hans voru þessir kennarar: Páll Kr. Pálsson organleikari, Þórarinn Jónsson tónskáld og Guðmundur Matthíasson kenn- ari. Námsgreinar voru: Orgelleikur, söngur, tónfræði, tónlistar- saga, messusöngur og söngstjórn. Alls komu í skólann 35 nemendur, og voru meðal þeirra H guðfræðistúdentar, 16 organleikarar, 5 söngkennarar og 3 ein- söngvarar úr kirkjukórum. Sumir þessara manna stunduðu nám 2—3 vetur. Kirkjuorgel hafa verið keypt á árinu í 6 kirkjur, m. a. pípu- orgel í Landakirkju í Vestmannaeyjum. Aðalfundur Kirkjukórasambands íslands var haldinn 22. júní, og sóttu hann, auk stjórnar sambandsins, fulltrúar frá 16 kirkjukórasamböndum og formenn Kirkjukórasambanda Suður- Þingeyjar og Borgarfjarðarprófastsdæma. Vinnur Sambandið hið bezta verk í þágu kirkjusöngsins og hefir ráðið ágætlega hæfan mann, Kjartan Jóhannesson, til þess að ferðast um og æfa kirkjukóra, auk ýmissa annarra. Formaður Kirkjukórasambandsins var endurkosinn á fund-

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.