Kirkjuritið - 01.07.1954, Page 64

Kirkjuritið - 01.07.1954, Page 64
350 KIRKJURITIÐ stjórninni að verja nokkru fé. Og mun ríkisstjórnin hafa fullan hug á framkvæmdum í því máli. Hefir kirkjumálaráðherra skipað þriggja manna nefnd til þess að gjöra tillögur um endur- reisn Skálholts og framtíðarskipulag staðarins og hafa í því efni samráð við biskup. í nefndinni eru nú Hilmar Stefáns- son bankastjóri, formaður, Magnús Már Lárusson prófessor, ritari, og séra Sveinbjörn Högnason prófastur. Er nefndin þegar tekin til starfa og miðar þau við það, að reist verði að fullu kirkja í Skálholti sumarið 1956, prestsseturshús, svo og öll nauðsynleg hús til búrekstrar. Ýms mál varðandi Skálholt bíða þó enn úrlausnar, og hefir því séra Eiríkur Stefánsson verið settur fyrst um sinn til þess að þjóna Skálhoitspresta- kalli, svo og gegna prófastsstörfum í Árnessprófastsdæmi. Kirkjuráðsfund hélt ég 15., 18. og 19. febr. með kirkjuráðs- mönnum. Tveir þeirra voru þá nýkjörnir af héraðsfundum, þeir Gísli Sveinsson f. sendiherra og Gizur Bergsteinsson hæsta- réttardómari. En einn, séra Þorgrímur Sigurðsson, hafði þá verið kosinn ásamt mér af andlegrar stéttar mönnum fyrir einu ári. Ráðið var þannig ekki fullskipað, þar eð kjósa þurfti í minn stað. Kirkjuráðið tók mörg mál til meðferðar, og skulu hér að- eins nefnd þessi: Samið var um það við ísafoldarprentsmiðju h.f., að hún gæfi út sálmabókina, vandaða, í snotru og sterku bandi, og mætti verð hennar ekki fara fram úr 20 kr., er í hlut ættu kirkjur, safnaðarfélög, skólar eða efnalitlar fjölskyldur. Er þannig að nokkru leyti bætt úr því ofurverði, sem á bókinni hefir verið. Vona ég, að sama megi segja um fráganginn. Þeim tilmælum var beint til kirkjumálaráðherra, að hann skipaði 3 manna nefnd til þess að semja frumvarp til heildar- laga um málefni kirkjunnar. Mun ráðherra verða við þeim tilmælum. Kosning eins manns í kirkjuráð fór fram á tímanum fra 15. marz til aprílloka. Kosningu hlaut séra Jón Þorvarðsson. Kjörtímabil þessa kirkjuráðs verður til 1. ágúst 1958. Kirkjuleg blöð og tímarit hafa komið út hin sömu og áður. Kirkjublaðið hætti að koma út skömmu eftir lát biskups. En

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.