Kirkjuritið - 01.12.1954, Page 7

Kirkjuritið - 01.12.1954, Page 7
HUGLEIÐING 429 Síðar var hann í þessari sömu konungshöll hrakinn og smáður, dæmdur til dauða og krossfestur. Það var ekki móðurástin, sem dæmdi hann. Það var önnur ást. Það var ekki kærleikurinn, sem krossfesti hann, heldur hinir grimmu eiginleikar manneðlisins. Þannig eru Ijós og skuggar hinna fyrstu jóla. Enn eru jólin að koma inn í hinn sama heim sem í fyrstu. Það er búið um þau í ástúðlegum hjörtum og setið um þau af grimmd og slægð, ef til vill ekki jólahátíðina sjálfa, heldur boðskap jólanna: „Yður er í dag frelsari fæddur“. Sá er meðal mannanna, sem frelsað getur sálir þeirra frá glötun, gefið mönnunum eilíft líf í kærleika, friði og einingu — þessa heims og annars. Sá lifir og rikir, sem gefur mönnunum trú og varðveitir þá í trúnni, í sam- félaginu við Guð. Jesús, frelsari mannanna er fæddur. Hann fæðist i hjarta hvers manns, sem trúir á hann. Og um leið er fluttur annar boðskapur í orði og fram- kvæmd. Það er boðskapur Heródesar konungs í nýrri tækni og nýjum tilbrigðum. Boðskapur þessarra tveggja konunga er fluttur í orð- um og athöfnum. Þannig hefir það alltaf verið og þannig er það í dag. Hvorum er girnilegra að fylgja? Þú þarft ekki að svara þegar í stað, sízt af öllu óhugsað. Þessari spurningu má ekki svara í hvatvísi, hvorki í augnablikshrifningu jólahátíðarinnar, né byggja á sleggjudómi öfgafullrar andúðar. Þess er alls ekki krafizt, að spurningunni sé svarað með einu orði. Kristinn maður svarar henni með lífi sínu, ævi- starfi, hugsunum sínum og ávöxtum hugans, orðum og athöfnum. Hversu lítið er eitt orð í samanburði við heila ævisögu. Þótt máttur orðsins sé mikill og ótvíræður, er enn meira um vert að lifa eftir skoðun, lifa þannig, sem innsta þráin vísar leiðina.

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.