Kirkjuritið - 01.12.1954, Side 56
478
KIRKJURITIÐ
mundu vera fúsir að leggja slíku nauðsynjamáli lið, svo að
endurbót kirkjunnar gæti miðað vel áfram og verið lokið á til-
settum tíma. Það væri vel, ef vinir Ögurkirkju sýndu henni
svipaða ræktarsemi og Ragnhildur Jakobsdóttir hefir nú sýnt
með hinni rausnarlegu gjöf.
Magnús GuömundssonSetbergi.
Gjöf til Reynistaðarkirkju í SkagafirSi.
Þegar fermt var að Reynistað á hvítasunnudag í vor, voru
vígð til notkunar ný messuklæði, rykkilín og hökull, hvort-
tveggja gjöf frá hjónunum að Reynistað, frú Sigrúnu Pálma-
dóttur og Jóni Sigurðssyni alþingismanni. Hefir frú Sigrún
sjálf saumað rykkilínið, en hökullinn er útlendar. Eru þetta
hinir prýðilegustu munir. Er þessi fallega gjöf bæði gefendum
og hinni hálfníræðu virðulegu kirkju til sóma. H. K.
Gjöf til Stafholtskirkju.
Á s.l. vori gáfu þau hjónin Kristín Björnsdóttir og Guð-
mundur Magnússon í Efra-Nesi Stafholtskirkju tvo fagra út-
skorna ljósastjaka til notkunar á prédikunarstól. Er safnaðar-
fólk í Stafholtskirkju þakklátt góðum gefendum og óskar
þeim velfarnaðar í nýjum heimkynnum. B. B.
A Idarafmœli Skin n astaSarkirkju.
Hundrað ára afmælis Skinnastaðarkirkju var minnzt með veg-
legri hátíð að Skinnastað sunnudaginn 8. ágúst.
Hátíðin hófst kl. 14 með skrúðgöngu frá prestssetrinu til
kirkju, og gengu þar fyrstir 6 hempuklæddir prestar, sýslu-
maður Þingeyinga, síðan fjölmennur hópur ættmenna séra Hjör-
leifs Guttormssonar, sem prestur var að Skinnastað, er kirkjan
var reist. Kirkjugestir voru meira en helmingi fleiri en kirkjan
rúmaði eða 3—400 manns, og hafði tjald eitt mikið verið reist