Kirkjuritið - 01.12.1954, Blaðsíða 16
438
KIRKJURITIÐ
Jónssonar frá Mosdal framan á sönglofti, altarisgráðum og pré-
dikunarstóli. En forsögn um allan þennan fagra útskurð hafði
séra Sigtryggur prófastur Guðlaugsson. Kirkjan er raflýst og
ágætlega búin ljósatækjum. Meðal annars á hún tvo stóra
ljósahjálma úr kopar, er Dýrfirðingafélagið í Reykjavík gaf
henni. Margar aðrar góðar gjafir hafa verið henni gefnar, og
er hér of langt upp að telja.
Eftir guðsþjónustu var haldið samsæti í borðsal skólans.
Gekkst Núpssöfnuður fyrir því, og önnuðust konur sóknarnefnd-
armanna og varasafnaðarfulltrúa veitingar. Prestur og pró-
fastur fluttu báðir ræður.
Gistum á Núpi þessa nótt og hina næstu.
Daginn eftir vísiteraði ég að Sœbóli á Ingjaldssandi. Þar er
snotur steinkirkja, lítil, enda fámennur söfnuður. Hún var
vígð 29. september 1929. Hafði þá verið kirkjulaust þar áður
síðan 28. janúar 1924, er Sæbólskirkja fauk í ofsaveðri og
brotnaði í spón. Útskurður er á altarisgráðum og bekkjum
eftir formann sóknarnefndar og safnaðarfulltrúa, Jón Jónsson,
bónda að Sæbóli. Elzti gripur kirkjunnar er koparhjálmur ágæt-
ur, frá 1649. Hún á fagran skírnarfont eftir Guðmund Einars-
son frá Miðdal, gjöf frá smiði kirkjunnar, Torfa Hermanns-
syni, og fleiri góða gripi.
Formaður sóknarnefndar bauð öllum kirkjugestum til sam-
eiginlegrar kaffidrykkju. Flutti þá séra Sigtryggur prófastur
langa og merkilega ræðu. Meðal annars gat hann þess, að hann
hefði farið 1000 sinnum fjallveginn erfiða og langa milli Núps
og Sæbóls.
Morguninn eftir kvaddi ég þennan merka og ágæta braut-
ryðjanda hjá garði hans, ,,Skrúð“.
Þann dag, laugardaginn 7. ágúst, vísiteraði ég að Þingeyri í
prestakalli séra Stefáns Eggertssonar. Þingeyrarkirkja er fögur
kirkja eins og þær kirkjur aðrar, sem Rögnvaldur húsameistari
Ólafsson gjörði uppdrátt að. Hún er reist á árunum 1909—10
úr steinsteypu, og tekur nær 250 manns í sæti. Hún er bæði
rafhituð og raflýst, og hirðing öll ágæt. Hún hefir fengið ýmsa
muni úr Sandakirkju og eignazt að gjöf góða gripi, meðal
annars skírnarfont, útskorinn af Ríkarði Jónssyni, gefinn til
minningar um frú Jórunni Benjamínsdóttur á Þingeyri. Organ-
leikari og söngflokkur kirkjunnar önnuðst söng með prýði.