Kirkjuritið - 01.12.1954, Blaðsíða 15
VÍSITAZÍA
437
þeirra forna, til dæmis tvo koparstjaka, er séra Sveinn Símon-
arson, faðir Brynjólfs biskups, gaf henni, og mjög fagran ljósa-
hjálm úr kopar.
Síðari hluta dagsins vísiteraði ég að Kirkjubóli í Valþjófs-
dal. Þar er lítil kirkja, enda fámennur söfnuður. Hún á góða
gripi. Eru sumir þeirra gjöf frá börnunum í söfnuðinum.
Um nóttina var aftur gist í Holti.
Næsta dag, fimmtudaginn 5. ágúst, fylgdi prófastur mér til
Núpsprestakalls í Dýrafirði. Kom sóknarpresturinn þar, séra
Eiríkur J. Eiríksson, skólastjóri Núpsskóla, til móts við okkur
aö Mýrum. Og fór þar fram vísitazía í hinni veglegu kirkju,
er fékk gagngera endurbót 1952—53 og var vígð 31. maí f. á.
Ber kirkjan fagurt vitni um mikla ræktarsemi safnaðarins og
fúsleik til fjárframlaga. Eftir guðsþjónustu í kirkjunni bauð
sóknarnefndin öllum kirkjugestum til sameiginlegrar kaffi-
drykkju. Voru þar fluttar ræður og kvæði. Samkór Mýrar-
Séra Eiríkur J. Eiríksson,
skólastjóri, Núpi.
Séra Sigryggur Guölaugsson,
prófastur, Núpi.
sóknar og Núpssóknar annaðist söng í báðum sóknarkirkjunum
af mikilli prýði.
Seinna um daginn fór fram vísitazía í Núpskirkju. Kirkjan
er reist úr steinsteypu árin 1938—39 og tekur um 120 manns
í sæti. Hún er vönduð og prýdd útskurði Guðmundar kennara