Kirkjuritið - 01.12.1954, Blaðsíða 19
Evanstonþingið.
Annaö þing alþjóSakirkjuráösins.
Inngangsorð.
Annað þing alþjóðakirkjuráðsins eða heimskirkjuráðsins var
haldið í borginni Evanston í Illinois rétt hjá Chicago, síðari
hluta ágústmánaðar. Sat séra Bragi Friðriksson, prestur að
Lundar í Manitoba, þing þetta sem fulltrúi íslenzku kirkjunnar,
en stud. theol. Kristján Búason af hálfu ungmennasamtakanna.
Auk þeirra var séra Pétur Magnússon í Vallanesi þar um hríð,
og Þórir Kr. Þórðarson, dósent, heimsótti þingið.
Hefir séra Bragi nú sent mjög rækilega skýrslu um þing
þetta og Kristján flutt um það útvarpsfyrirlestur. Skýrsla séra
Braga er því miður of viðamikil til birtingar í Kirkjuritinu,
en það vill þó ekki láta hjá líða að skýra frá þessu stórmerka
þingi í stuttu máli, og er þá stuðzt við þessar frásagnir og fleira.
Aðdragandi.
Langt er síðan margir ágætir kirkjuleiðtogar fóru að hug-
leiða, með hvaða móti mætti knýta bönd milli hinna ýmsu
Berggrav Atlienagoras Boegner Fislier Oxnam
29