Kirkjuritið - 01.12.1954, Page 11

Kirkjuritið - 01.12.1954, Page 11
VÍSITAZÍA 433 Þótti mér mikils um vert að sjá þetta fornfræga höfuðból líkt °g Vatnsfjörð áður. Ögurkirkja er bændakirkja, reist 1833, en endurbætt 1859. Hún hefir verið rafhituð, og er viðhald hennar í góðu lagi. I Ögri skildu leiðir okkar prófasts. Hafði hann í hvívetna undirbúið vísitazíu mína sem bezt. Við hverja messu mælti hann til mín nokkrum orðum, og ég svaraði og ávarpaði söfn- uðinn á ný í lok hverrar guðsþjónustu. Hélt ég þeirri venju Séra SigurOur Krisijánsson, IsafirOi. Séra Þorsteinn Jóhannesson, •prófastur, Vatnsfiröi. jafnan síðan. Og allir prestanna fluttu stutta ræðu til mín í kirkjum sínum og minntust þá stundum á sérstök kirkjumál. Að vísitazíunni var jafnan aðsókn hin bezta, og sóttu þær rneðal annarra sóknarnefndarmenn, safnaðarfulltrúar og með- hjálparar. Frá Ögri hefði ég mjög gjarnan viljað fara til prestsseturs- jarðarinnar, Hvítaness, en þess var ekki kostur. Aftur á móti komum við í Vigur, hið gamla höfuðból séra Sigurðar Stefáns- sonar, og þótti mikið til þess koma. Um kvöldið fórum við að Eyri í Seyðisfirði og gistum þar. Næsta dag vísiteraði ég Eyrarkirkju. Skömmu áður en guðs- þjónusta hófst, kom séra Sigurður Kristjánsson sóknarprestur á Isafirði, sem nú þjónar einnig Eyrarsókn. Hann hafði með sér Jónas Tómasson tónskáld og organleikara á Isafirði og

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.