Kirkjuritið - 01.12.1954, Page 13

Kirkjuritið - 01.12.1954, Page 13
VÍSITAZÍA 435 við svo til Isafjarðar, og var gist á prestsetrinu næstu nætur. Laugardaginn 31. júlí vísiteraði ég ísafjarðarkirkju. Söng- flokkur hennar er stór og mjög góður, enda söngstjóri og organ- leikari frábær. Ingvar Jónasson, sonur hans, lék einleik á fiðlu, frumsamið lag. ísafjarðarkirkja var reist fyrir 94 árum. En laust fyrir aldamótin var bætt við hana kór. Árið 1934 var reist söngstúka að norðanverðu við kirkjuna og þar komið fyrir vönduðu pípuorgeli. Kirkjan tekur um 300 manns í sæti. Hún er fagurt Guðs hús, rafhituð og raflýst og í alla staði vel við haldið. Henni hafa verið gefnir margir ágætir munir. Þannig gáfu til dæmis kvenfélögin Hlíf og Ósk á ísafirði vandaðan gólfdregil og dúk fyrir framan altari, Þorsteinn Sch. Thor- steinsson lyfsali fagra ljósastjaka til minningar um fermingu sína í ísafjarðarkirkju fyrir 50 árum, Guðrún Pétursdóttir biskupsfrú altarisklæði og altarisdúk og dr. Sigurgeir Sigurðs- son biskup kirkjulíkan. Um kvöldið sátu starfsmenn safnaða ísafjarðar og Hnífsdals og fleiri gestir boð prestshjónanna. Sunnudaginn 1. ágúst vísiteraði ég í Hnífsdal. Fékk söfnuður- inn þar leyfi til þess, árið 1925, að vera sérstakur söfnuður. En kirkja hefir ekki enn verið reist þar, svo að við héldum guðsþjónustu í barnaskólanum. í sambandi við skólahús, sem langt er komið að byggja, er í smíðum kapella, og er ætlazt til þess, að smíði hennar verði lokið fyrri hluta næsta vetrar. Um kvöldið héldum við guðsþjónustu í skólahúsinu að Braut- arholti í Skutulsfirði. Er þar í firðinum mikill og eindreginn áhugi á því að reisa kapellu. Mánudaginn 3. ágúst hófst vísitazía í Vestur-ísafjarðar- Prófastsdæmi. Þar vísiteraði ég Staðarkirkju í Súgandafirði og kirkju og söfnuð að Suðureyri. Sóknarprestur er séra Jóhannes Pálmason. Staöarkirkja er hrörleg orðin. Þaðan fara enn fram útfarir, en ekki er messað nema einu sinni eða tvisvar á ári. Suðureyrarkirkja er vönduð og vegleg steinkirkja og tekur um 160 manns í sæti. Hún var vígð 1937 og þá skuldlaus. Henni hafa verið gefnar margar ágætar gjafir af Súgfirðingum og vinum þeirra, svo sem altaristafla, ljósakrónur, skírnarfontur og klukkur. Sóknarpresturinn hefir mjög eflt kirkjusöng í kaup- túninu.

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.