Kirkjuritið - 01.12.1954, Qupperneq 17

Kirkjuritið - 01.12.1954, Qupperneq 17
VÍSITAZÍA 439 Sunnudaginn 8. ágúst fór fram vísitazía að Hraunskirkju í Keldudál. Kirkjan tekur í sæti 60—70 manns, en nú eru að- eins 36 á manntali safnaðarins. Hún er um 70 ára gömul og all- hrörleg orðin. Hún á einn dýrgrip, þar sem er ágætt eintak af Þor- láksbiblíu. Bæði kvöldin, laugardags og sunnudags, dvaldist ég á Þingeyri með prestshjónunum og ýmsum ágætum starfsmönnum safnaðarins mér til mikillar ánægju. Næsta dag vísiteraði ég að Hrafnseyri. Þar er nú kominn nýr prestur, séra Kári Valsson, tékk- neskur maður, sem hlotið hefir ís- lenzkan borgararétt. Kirkjan er nær 70 ára gömul, orðin gisin og hvorki laus við fúa né leka. Þyrfti ný kirkja að rísa sem fyrst og yfirleitt endurbygging húsa á þessum sögufræga stað. Er vonandi, að Hrafnseyrarnefnd og Alþingi láti það mál til sín taka þegar á þessu ári. Síðasti vísitazíudagur minn að þessu sinni var þriðjudagur- inn 10. ágúst. Fór ég þá á bát frá Hrafnseyri til Álftamýrar. Kirkja þar er lítil, enda söfnuðurinn í Álftamýrarsókn fá- mennasti söfnuðurinn, sem ég vísiteraði, tæplega 30 manns á manntali. Kirkjan er nýmáluð, en þarfnast ýmissa endurbóta. í lok guðsþjónustu bauð formaður sóknarnefndar hinn nýja prest velkominn. Þessi frásögn er þegar orðin löng, og hefi ég þó farið mjög fljótt yfir sögu og ekki lýst því, sem mest er um vert. En það er fólkið sjálft, og ástúð þess, sem aldrei gleymist. Ég hefi að vísu áður komið í helztu kaupstaði Vestfjarða, en nú hefi ég greypt í huga undurfagra og stórfenglega mynd af sól- stöfuðum fjörðum, háreistum og tignarlegum fjöllum og svip- hýrum sveitum. Þar búa góðir og göfgir menn, karlar og konur, sem heyja lífsbaráttu sína af djörfung og þrótti og breiða auk þess faðminn á móti æskulýð kaupstaðanna, honum til þroska og blessunar. Mér hnykkti við í fyrstu, þegar lýst var nákvæm-

x

Kirkjuritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.