Kirkjuritið - 01.12.1954, Page 27
SIGURÐUR STEFÁNSSON:
Síra Jón Þorláksson á Bœgisá.
Synóduserindi l95Jf.
Allir íslendingar kannast við æskusveit og átthaga Jón-
asar Hallgrímssonar, „þar sem háir hólar hálfan dalinn
fylla“. Hraun í öxnadal þekkir nálega hvert mannsbarn,
margir einnig Hraundranga og jafnvel Gljúfrabúa og
Bröttuskeið. Þeir, sem ferðast um öxnadal fyrsta sinn,
leita uppi þessi Ijúfu nöfn og geyma sér í minni. Og ýmsa
veit ég þá, sem oft eiga þar leið, en sjaldan eða aldrei
svo, að hugur þeirra hvarfli ekki að minnsta kosti andar-
tak til Jónasar, lífs hans og ljóða. Svo samgróin er þjóðin
þessu óskaskáldi sínu.
En, þegar komið er framan öxnadal, og þrýtur sjálfan
dalinn, tekur aftur við sjónarsvið merkilegrar sögu og
Ytri-Bœgisá.