Kirkjuritið - 01.12.1954, Side 30

Kirkjuritið - 01.12.1954, Side 30
452 KIRKJURITIÐ Vafalaust hefir hann ekki fýst þessarar farar. En hér rak nauður til. Og kannske voru það hamingjudísir fslands, sem því réðu, þrátt fyrir allt, að séra Jón Þorláksson varð að gerast prestur einmitt á Bægisá, vísast í fyrstu mót vilja sínum og von. Af ýmsu má ráða, að hann hafi þar fljótt fest yndi og kunnað hag sínum harla vel. Og á þessum friðsæla, fagra stað virðist fyrst svo búið að guðsgáfu hins mikla snillings, að hún hafi notið sín nokkurn veginn til fulls. Að minnsta kosti er það stuttu eftir komu sína að Bægisá, sem séra Jón ræðst í reglu- legt stórvirki á sviði andans og hæfileikum sínum loks samboðið. En þá er hann líka allt í einu orðinn langt á undan skáldbræðrum sínum, þeim, sem að ýmsu leyti héldu til jafns við hann áður, og markar stór og skýr tímamót í bókmenntasögu þjóðarinnar. Þá er hann orðinn fyrir- rennari nýrrar skáldakynslóðar í landinu, lærifaðir og meistari þeirra manna, sem enn í dag eru dáðir mest allra íslendinga fyrir list sína og Ijóð. Hér er þess enginn kostur að rekja nema örfáa þætti úr ævi séra Jóns Þorlákssonar, en æði flest er þar með sterkum og stórbrotnum svip, eins og mörgum er kunnugt- Hann var Vestfirðingur að ætt og uppruna, fæddur á Lucíumessu, 13. desember 1744, í Selárdal í Arnarfirði, þar sem faðir hans var þá prestur og hafði tekið við af föður sínum, séra Guðmundi Vernharðssyni. En í móður- ætt var séra Þorlákur kominn af séra Arngrími lærða. Móðir séra Jóns, en fyrri kona séra Þorláks, var Guðrún Tómasdóttir frá Krossadal í Tálknafirði, og voru föður- frændur hennar þar sumir víðfrægir menn fyrir táp °S hreysti, eins konar Hafnarbræður þeirra Vestfirðinga. Móður sína missti Jón Þorláksson ungur og er eitt feg- ursta kvæði hans henni helgað. Það hefst á þessa leið:

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.