Kirkjuritið - 01.12.1954, Page 40

Kirkjuritið - 01.12.1954, Page 40
462 KIRKJURITIÐ að vöxtum. Má til dæmis geta þess, að Messíasarkviða er í þýðingu séra Jóns undir fornyrðislagi hvorki meira né minna en 80000 vísuorð (eftir talningu dr. Alexanders Jóhannessonar, háskólarektors). Og Paradísarmissir litlu skemmri. En þetta allt vann séra Jón á ótrúlega stuttum tíma. Paradísarmissi mun vinur hans, Halldór Hjálmarsson, hafa sent honum árið 1790 og hvatt hann til að snúa. Og þessu verki er lokið 1805. En þá er Klopstock líka kominn til sögunnar og fullgerður á næstu árum. Og ekki þar með búið. Séra Jón þýddi enn eina bók á Bægisárárum sínum öndverðum. En það var „Tilraun um manninn“ eftir Alexander Pope (,,Pópa“), heimsfrægt verk, heim- spekilegs efnis, og kom út á Leirárgörðum 1798, tileinkað Stefáni amtmanni Þórarinssyni. Og að engu þessu var höndum kastað. Hvergi náði séra Jón Þorláksson slíku töfrataki á sína margstrengjuðu hörpu og í þýðingum þessum, einkum þó Paradísarmissi og Messíasarkviðu. Snilld þeirra varð mönnum í senn ráðgáta og aðdáunarefni. Og flaug nú orðstir skáldsins landsenda á milli og útlendir menntamenn kepptust um að sýna honum margs konar sæmd og virðingu. Sumir þeirra, sem ferðuðust hér heima, gátu hans í bókum sín- um með miklu lofi, eins og skozki landkönnuðurinn Mac- kenzie, og aðrir sóttu hann heim norður að Bægisá, eins og enski presturinn dr. Henderson og málfræðingurinn frægi, Rasmus Kristján Rask, er tók að safna handritum skáldsins. Og fyrir dauða sinn höfðu séra Jóni hlotnazt opinber heiðurslaun úr tveim áttum, fyrstum íslenzkra skálda, frá konungi Dana (40 dala árslaun) og félagi fagurra iista í Bretlandi stór fjárupphæð (270 dalir). Og þó urðu frægustu verk hans ekki gefin út í heild fyrr en árið 1828, Paradísarmissir, og stóðu að útgáfu hans fyrir Bókmenntafélagið séra Þorgeir Guðmundsson og séra Þorsteinn Helgason í Reykholti, sem mjög lét sér annt um að halda til haga verkum séra Jóns, og árin 1834

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.