Kirkjuritið - 01.12.1954, Síða 45

Kirkjuritið - 01.12.1954, Síða 45
SÍRA JÓN ÞORLÁKSSON Á BÆGISÁ 467 EFTIRMÁLI. í dagblaðinu „Vísi“, 24. júní s.l., gerði Snæbjörn Jóns- son, rithöfundur, „litla athugasemd" við erindi mitt, og voru ábendingar hans, er einkum snertu tvö atriði, með þökkum þegnar og leiðrétt það, sem þurfa þótti, eins og erindið er nú prentað. Var hér aðallega um að ræða nokkra misfellu á vísu séra Péturs á Víðivöllum: „Seraf lægsti o. s. frv.“ — „verða von“ í stað „vera von“, en leshátt- inn hafði eg eftir mörgum heimildum, til dæmis Ævisög- unni i Ljóðabók II. Stökuna um Hjaltadalsheiði tilfærði eg ekki, en gat hennar lauslega, óbeint, og breytir raunar engu, þó að Jón Jakobsson, sýslumaður, eigi hana með nafna sínum. Auðvitað varð mörgu og mörgum að sleppa í erindi þessu, er það var samið og flutt, svo þröngur stakkur, sem því var skorinn. En rétt er það, að ómaklega kom það niður á Þorsteini stúdent Jónssyni frá Auðkúlu, úr því að minnzt var nokkurra þeirra manna, er stóðu að útgáfu rita séra Jóns. Var Þorsteinn einn ötulasti bókaútgefandi hér á landi um skeið á fyrra helmingi 19. aldar, eldheitur hugsjóna- maður, lista og menntavinur. Keypti hann safn séra Þor- steins heitins í Reykholti af Ijóðum séra Jóns, jók mikið og gaf síðan út ljóðabók séra Jóns Þorlákssonar í tveim bindum 1842—1843 (Kaupmannahöfn). Bjó Jón Sigurðs- son forseti verkið undir prentun og reit ævisögu skáldsins. Er útgáfa þessi hin vandaðasta og verður sjálfsagt ávallt talin ein aðal-heimildin um séra Jón Þorláksson, líf hans og list. Nota eg svo tækifærið til að þakka Snæbirni Jónssyni og öðrum þeim, sem getið hafa erindis míns lofsamlega, bæði í blöðum og á öðrum vettvangi. Loks skal það tekið fram, að minnisvarðann á leiði séra Jóns reistu honum niðjar hans, og hafði dr. Jón Þorkelsson þar alla forgöngu og forsögn. Gaf hann og út um svipað

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.