Kirkjuritið - 01.12.1954, Síða 54

Kirkjuritið - 01.12.1954, Síða 54
476 KIRKJURITIÐ árið 1934. Varð þá að byggja sérslakt þverskip við kórinn fyrir orgelið og er það einnig notað af söngkórnum, en slíkt fyrir- komulag virðist undirrituðum miklu eðlilegra, þrátt fyrir forn- ar venjur, og spáir því útbreiðslu hér í okkar frjálslyndu kirkju. Virðist orgel þetta enn vera í góðu lagi, þrátt fyrir rúmlega hálfrar aldar þjónustu. Fyrsta pípuorgelið á íslandi, utan Reykjavíkur, mun hafa verið sett í Hafnarfjarðarkirkju árið 1914. í hinni stóru og nýlegu Akureyrarkirkju er ekki pípu- orgel, heldur rafmagnsorgel. Annað var það í ísafjarðarkirkju, sem engu síður vakti at- hygli mína, en það var mjög fagurt kirkjulíkan, sem stendur nálægt orgelinu. Líkan þetta er eftir Guðjón heitinn Samúelsson, en Sigurgeir heitinn Sigurðsson biskup fékk það handa sinni uppáhaldskirkju. Var ég hrifinn af hinum íslenzka stuðlabergsstíl, sem er svo vel samræmdur um alla bygginguna. Síðan hefir ekki frá mér vikið óskin um, að Hallgrímskirkjan í Reykjavík yrði byggð eftir þessari fyrirmynd og þá um leið af nokkru hóflegri stærð en nú er áformað. Er húsameisturum vorum vissulega treyst- andi til að samræma slíka byggingu þeim grunni, sem þegar er gerður, ef til vill með nokkurri styttingu og öðrum nauðsyn- legum breytingum. Má ekki horfa í slíka fyrirhöfn, ef tvennt vinnst: Sköpun fegurri minningarkirkju Hallgríms Péturssonar og þá um leið nokkur sparnaður á milljónakostnaði kirkjunnar miklu. Ég lýk svo þessum leikmanns-hugleiðingum með einlægri ósk um, að foráðamenn kirkjubyggingarinnar vilji gefa gaum hugmynd þessari, þótt fráleit kunni að virðast í fyrstu. Guöm. Ágústsson (frá Birtingáholti). Gjöf til Ögurkirkju. Hinn 3. júní s.l. voru liðin hundrað ár frá fæðingu Jakobs Rósinkarssonar, óðalsbónda í Ögri við ísafjarðardjúp. Dóttir hans, Ragnhildur Jakobsdóttir, hefir nýlega gefið vandaðan ofn í Ögurkirkju og minnzt á þann veg 100 ára afmælis föður síns. Jakob Rósinkarsson var framkvæmdamaður mikill, meðan hann

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.