Kirkjuritið - 01.04.1961, Blaðsíða 12
154
Kirkjuritið
þar sem hann er. Því að svo mörg sem fyrirheit Guðs eru,
í honum er staðfesting þeirra með jái; þess vegna skulum vér
og fyrir hann segja amen Guði til dýrðar“.
Biðjum þess, að þetta amen, þessi játning og staðfesting
búi í kirkju vorri.
Vér skulum því segja amen Guði til dýrðar.
Amen, amen, ómi Hel
öllu stjórnar Drottinn vcl,
herra Sigurbjarnar Einarssonar við útför
séra Fri&riks
„Lofaður sé Guð og faðir Drottins vors Jesú Krists, sem í
himinhæðum hefur fyrir Krist blessað oss með hverskonar
andlegri blessun“.
Þetta las ég síðast upp fyrir séra Friðrik og nokkru lengra
lofgjörð Páls í upphafi Efesusbréfsins. Og ég vissi það, að
þótt orka væri þorrin mjög svo til andsvara, var hvert orð
vakandi líf í sálu hans og kaflinn í heild trútt inntak allrar
hans vitundar.
Nú leyfi ég mér að flytja honum kveðju íslenzku þjóð-
kirkjunnar, áður en lík hans er hafið héðan út. Ég vel þeirri
kveðju sömu orð. Þau segja allt. Hið stærsta af öllu stóru
hjá þeim einstaka manni, séra Friðrik, var það, að hann var
lifandi vitni þess veruleiks, sem postulinn játar og þakkar
og kirkjan byggir á. Og hvorki þess vegna né neins ann-
ars vegna vill hann láta þakka sér né hylla sig, heldur lofa
og vegsama þann Drottin, sem blessaði hann og er fullrík-
ur fyrir alla.