Kirkjuritið - 01.04.1961, Blaðsíða 34
176
Kirkjuritið
bæ og séra Sigfús á Mælifelli. Þeir voru prýði sinnar stéttar,
sveitarhöfðingjar og miklir mannkostamenn. Báðir voru
frjálslyndir, víðsýnir og umburðarlyndir. Þeir fylltu ekki
breyskar sálir nagandi ótta við eilífa útskúfun. Allir litu
upp til þeirra, öllum þótti vænt um þá. Heimili þeirra voru
höfuðból í öllum skilningi. Séra Björn skírði mig og fermdi.
Ég hafði af honum mjög náin kynni, enda fulltíða maður,
er hann féll í valinn. Og vafalaust hefur hann átt þátt í því
að móta skoðanir mínar í andlegum efnum, enda þótt ég
gerði mér þessi ekki fulla grein — hvorki þá né síðar.
En æskudagarnir eru liðnir og meira til — og þeir tímar
koma ekki aftur. Með breyttum þjóðfélagsháttum hefur að-
staða prestsins og skilyrði hans öll til að rækja starf sitt
gerbreytzt, — ef til vill til hins betra, ef til vill ekki. En sú
staðreynd haggar í engu þeirri sannfæringu minni, að nú, á
þessum tímum, á þessari atomöld og véla, þegar blind og
óvæg efnishyggja veður uppi, þegar flest verðmæti eru mið-
uð við Mammon og vélar, — þá á presturinn, sálgæzlumað-
urinn, hinn andlegi leiðtogi, ekki minna, heldur óefað miklu
stærra hlutverki að gegna, en ef til vill nokkru sinni áður.
Því veltur á miklu, að bæði þjóðfélagið og söfnuðurinn sjálf-
ur skapi prestinum þau ytri skilyrði, að ekki verði hinu mik-
ilsverða starfi til tálmunar — og ekki þá síður hinu, að til
prestsstarfsins veljist menn, sem fái valdið hlutverki sínu:
góðir menn, víðsýnir og umburðarlyndir; menn, sem séu
vinir fólksins og félagar og færir um að glæða skilning á
því, hversu óendanlega miklu ofar andinn er efninu. En
jafnframt skyldum við minnast þess æ og ævinlega, að eins
og presturinn hefur skyldum að gegna við söfnuðinn, svo
hefur söfnuðurinn eigi síður skyldur að rækja við prestinn.
sinn.
Kirkjusókn er dræm, bæði í kaupstað og sveit. Er óefað
margt, sem kemur þar til. — Áhugaleysi fólksins, einkum
þó í þéttbýlinu; mannfæð á sveitaheimilum; hinn eitraði
hraði og eirðarleysið, sem í farið flýtur, o. m. fl. Ef til vill
eiga útvarpsmessur hér einhvern þátt. Sjálfsagt eiga þær