Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.04.1961, Page 18

Kirkjuritið - 01.04.1961, Page 18
160 Kirkjuritið skijta Guö nokkru. Hann kemur róti á djúpin og allt vorl öryggi fýkur eins og hálmstrá út í veöur og vind. Vilji hans einn heldur öllu uppi og ryöur sér alls staöar braut, enn nœrgöngulli en vatn og lojt. En sá misskilningur aö leita hans, jtar sem hann jtegar býr í öllu, umlykur og altekur oss. Þaö eina, sem vér þörfnumst er aö gefast honum á vald og aö girnast ekkert nema vilja hans. Guö ber jafn óumflýjanlegan kærleika til allra; til mín, sem hann hefur leyfl að lifa þetta af, óbifanlega öruggan um návist hans, til allra þeirra, sem dóu á hinu örlagaríka augnabliki og eru nú sælir i hans samfélagi, til allra, sem enn eru grafnir í rústunum á milli heims og helju, og hann gefur ráörúm til skilnings og sinnaskifta. Það er ljóst, að þetta kall skáldsins úr djúpinu, hefur kom- ið mörgum á óvart og vakið mikla umhugsun. Hættan mikla Chukuka Okonjo, sendimaður frá Nigeríu, lét m.a. svo um- mælt á fundi í Núrnberg ekki alls fyrir löngu: ,,Um trúboðið er það að segja, að hvítum mönnum er fyrst og fremst aðkall- andi að taka það alvarlega heima fyrir í sínum eigin ættlönd- um. Almennt talað eru allir Evrópumenn heiðingjar. Þeir eru afar slæmir vottar þeirrar trúar, sem þeir prédika“. Þessi háski hefur alltaf verið fyrir hendi. Páll postuli víkur strax að honum í bréfum sínum, getur þess oftar en einu sinni, hvílíkur vandi kristnum mönnum sé hér á höndum, að gera ekki trú sinni til skammar með líferninu. Af því að svo erfitt er að komast hjá slíku, hafa líka margir lagt einstreng- ingslega áherzlu á trúna, bæði fyrr og síðar. Slíkt er að sjálf- sögðu blekking.

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.