Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.04.1961, Side 20

Kirkjuritið - 01.04.1961, Side 20
162 Kirkjuritið Og það er ekki aðeins í fjarlægum álfum, sem kristninni er voði búinn vegna hugsunar og kæruleysis játenda hennar um líf og starf kirkjunnar. Svo er meira að segja á Islandi nú á dögum. Því að hver kynslóð er eins og akur, sem býr að vísu að fyrri rækt, en verður þó vel að gæta í kristilegu tilliti. Annars kemst hann í órækt, sem illt verður að ráða við um langan aldur og getur leitt til eyðileggingar. Vér þörfnumst sannarlega vortíða innan kirkjunnar — og þær koma ekki nema vér gerumst sjálfir vormenn. Talið er að upphaf einhvers fyrsta sálmsins, sem ortur hafi verið af kristnum manni, sé að finna í Efesusarbréfinu, og hljóðar svona: Vakna þú, sem sefur — Það er brýning, sem vér áreiðanlega þörfnumst. Undraverð vanþekking Ósjaldan ber það á góma og er borið á borð í blöðum, meira að segja er því slett á sjálfu Alþingi, að hörmung sé til þess að vita, hve miklu fé sé sóað í kirkjubyggingar af almannafé, sem nær væri að nota til sjúkrahúsbygginga o.s. frv. Flestir þeir, sem svo tala, munu samt sjálfir telja sig til kirkjunnar og ekki gera neina kröfu til þess að hún sé slitin úr tengslum við ríkið. En torvelt mun að benda á, að kirkjur standi nokkurs staðar í óþökk þeirra safnaða, sem þær sækja. Annars eru þessar ásakanir og umkvartanir alveg gripnar úr lausu lofti og stafa af bláberri fáfræði. Ríkissjóður hefur ekki fram á þennan dag kostað neinar kirkjubyggingar að undanskildu framlagi til dómkirkna og þeirra sem eru á vegum þjóðminjavarðar. Að minnsta kosti er þá um hreinar undantekningar að ræða, sem mér er ó- kvmnugt um. Og það eru aðeins örfá ár síðan að samþykkt var á Alþingi að stofna lánasjóð — Kirkjubyggingarsjóð Islands — með — segi og skrifa — fimm hundruð þúsund króna framlagi á ári, sem að vísu er nú orðið ofurlítið hærra.

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.